Nýjar myndir
| 30. september, 2008 | 9:44Það er komin inn slatti af nýjum myndum á vefalbúmið frá Motocross of Nations. Smellið hér til að skoða.
Lesa meira »
Það er komin inn slatti af nýjum myndum á vefalbúmið frá Motocross of Nations. Smellið hér til að skoða.
Lesa meira »
Bandaríkjamenn sigruðu Motocross of Nations keppnina sem lauk í dag. Sigurinn virtist vera nokkuð öruggur þangað til að James Stewart datt í síðasta mótói eftir að hafa keyrt á heybagga og það tók hann mjög langan tíma fyrir hann að koma hjólinu aftur í gang. Þetta kom þó ekki í veg fyrir að þeir sigruðu keppnina í 19 sinn, Frakkar voru í öðru sæti og Belgar í því þriðja, einu stigi á undan Bretum sem náðu fjórða sæti. Myndir frá keppninni í dag eru komnar inn á vefalbúmið.
Strákarnir okkar voru að klára B-final keppnina á Motocross of Nations og stóðu þeir sig allir mjög vel. Aron var þó að standa sig best og sýndi snilldartakta í brautinni sem var mjög erfið og sleip, en um leið og það var startað byrjaði að rigna og aðstæður voru því mjög erfiðar. Aron endaði í 29 sæti, Valdi í 35 og Einar í 36 sæti. Liðið endaði því í 11 sæti í heildina og fyrir neðan okkur voru Venuzuela og Mongólía. Brasíla vann, Írar urðu í öðru sæti og Rússar í því þriðja. Nokkrar myndir eru komnar inn á vefalbúmið. Aðalkeppnin hefst svo kl. 13.OO og verður sýnt frá henni á Eurosport bæði í sjónvarpi og á netinu.
Tímarnir hjá Íslenska landsliðinu í upphitun í morgun:
Aron 2:24:067 29sæti
Valdi 2:41:226 35 s æti
Einar 2:42:626 36 sæti
Besti tíminn var 2:08 í B úrslitum en það var Jorge Balbi frá Braasilíu.
Bestu tímar í A úrslitum var James Stewart 2:00 og Tanel Leok frá Eistlandi var með sama tíma .
Úrslit og myndir verða komnar strax eftir keppni hingað á vefinn
Landslið Ísland í motocross tók þátt í undankeppni Motocross of Nations í dag og stóð sig með miklum sóma. Að vísu náðu stkáranir ekki að komast í A úrslit, en það var kannski full mikil bjartsýni að búast við því enda tóku allir bestu ökumenn heims þátt í keppninni við kjöraðstæður á Donington Park í dag. Í fyrramálið keppa strákarnir í B-final keppninni og verður spennandi að sjá hvernig þeir standa sig þar.
Myndir frá laugardeginum eru komnar á vefalbúmið hér
Nú er um að gera að skrá púkana á krakkadaginn. Getum enn bætt við púkum.
Veðurspáin er alveg ágæt – hægur vindur, gæti gert smá vætu en engin er verri þó hann vökni aðeins.
Komum saman og gerum okkur glaðan dag með púkunum okkar.
Skráning á erlavalli@hotmail.com og rm250cc@simnet.is
Kveðja
Púkadeildin í VÍR
Íslenska motocross landsliðið kom sér fyrir við Donington Park brautina í gær til þess að undirbúa sig fyrir Motocross of Nations keppnina sem fram fer um helgina. Aðstæður á svæðinu eru með best móti og var sól og blíða og um 20 stiga hiti á svæðinu í gær. Að vísu liggur þoka yfir svæðinu núna, en hún á að fara þegar líður á daginn. Klukkan 10 hefjast æfingar og eftir hádegið byrja svo tímatökur. Vonandi gengur strákunum okkar vel og það væri frábær árangur ef þeir kæmust í A-flokk, en það verður að vísu að teljast ólíklegt þar sem þeir eru að etja kappi við þá bestu í heiminum. En við segjum að sjálfsögðu, áfram Ísland!
af SiljaHaralds
af stigurkeppnis
af admin
af herdishulda
er með suzuki 2003 árg big wheel til sölu, hjó...
[Read more]
Til sölu Kawasaki kx450f ´08 hjólið er í top...
[Read more]
Nýlegar athugasemdir
ATH VÍFA brautin er að sjálfsö...
og ótrúlegt hvað ég get ekki...
ótrúlegt að eitthverji r hvað...
Glæsilegt. Til hamingju með samning...
Við ættlum að taka þetta bara skref...
Glæsilegt. Til lukku með þetta. Nú er...
Flottust! Til hamingju VÍR.
Til hamingju með þetta. Á að setja...