Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Gulli 111 með námskeið

Ég verð með Motocross námskeið fyrir 85cc 2stroke og 150cc 4stroke í
ágúst.
Æfingarnar verða þriðjudaginn 12.  og fimmtudaginn 14. ágúst, annað
hvort að morgni, eða kvöldi. Hvað viljið þið? Hafiði tækifæri á að
láta foreldrana skutla ykkur uppí braut að morgni til? Gætuð þess vegna
hringt ykkur saman svo það séu ekki allir að skutla einum.

Lesa meira af Gulli 111 með námskeið


Þriðja umferð Íslandsmótsins í motocross

Þriðja umferð Íslandsmeistaramótsins í motocross fór fram á akstursvæði KKA nú um helgina. Mótið gekk mjög vel fyrir sig og skemmti fólk sér mjög vel. Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á brautinni undanfarið, og hefur meðal annars verið skipt um jarðveg. Keppendur voru flestir mjög ánægðir með breytingarnar.
Mótið gekk u.þ.b. stórslysalaust fyrir sig, en þó lærbrotnaði Eyþór Reynisson og sendir vefurinn honum baráttukveðjur.  Einnig datt Kristófer Finnsson í brautinni en vefurinn hefur ekki upplýsingar um hugsanleg meiðsl hans.

Lesa meira af Þriðja umferð Íslandsmótsins í motocross


Námskeið í ágúst

Tvö námskeið eru fyrirhuguð í ágúst. Annarsvegar eru það Aron og Össi sem eru með námskeið og svo er Gulli #111 einnig með námskeið. Þeir sem hafa áhuga er bent á tengilinn "þjálfun" hér til vinstri. Nú er um að gera að koma stílnum í lag og taka fram úr félögunum.

Lesa meira af Námskeið í ágúst


Námskeið hjá Aroni og Össa

Við viljum byrja á því að þakka þeim sem voru á fyrsta námskeiðinu hjá okkur fyrir skemmtilega helgi og vonum að þau hafi haft bæði gagn og gaman af.

Við höfum ákveðið að halda annað námskeið helgina 9-10 ágúst (helgina fyrir keppnina á Sauðárkróki). Farið verður í gegn um grundvallararatriði sem þurfa að vera á hreinu í motocrossi eins og mismunandi beygjur, stöðuna á hjólinu, stökk o.s.frv og áhersla lögð á að leiðbeina hverjum og einum eins og þurfa þykir. Til að námskeiðið skili svo sem mestum árangri þá verða teknar myndir í gríð og erg meðan á því stendur og að hverjum degi loknum eiga menn og konur (því þetta er alls ekki síður ætlað stelpum en strákum) að geta stúderað þær og séð hvað var vel gert og hvað þarf að bæta og haldið áfram að vinna í þeim atriðum.

Hægt er að sjá myndirnar frá síðasta námskeiði á slóðinni http://123.is/motocrossmyndir/

upplýsingar og skráning er hjá Aroni í gegn um netfangið aron@aron66.is. Þar þarf að koma fram:

Fullt nafn

Sími

Hjólategund

Óskir um tíma

Ágætt væri einnig að það komi fram hvort viðkomandi telur sig vera byrjanda eða eitthvað lengra kominn

Bestu kveðjur

Össi #404

Aron #66

Lesa meira af Námskeið hjá Aroni og Össa


Motocross skóli í ágúst

Gulli #111 ætlar að vera með Motocross námskeið fyrir 85cc 2stroke og 150cc 4stroke í Ágúst. Æfingarnar verða Þriðjudaginn 5 & Fimmtudaginn 7 Ágúst annað hvort að morgni til eða kvöldi. Hvað viljið þið? Hafi þið
tækifæri á að láta foreldrana skutlar ykkur uppí braut að morgni til? Gætuð þess vegna hringt ykkur saman svo það séu ekki allir að skutla einum.

Ef æfingarnar verða að morgni til þá verða þær frá 09:00-12:00 en ef þær verða að kvöldi til þá verða þær frá 18:00-21:00. Mér langar helst að hafa þær að morgni til, þá höfum við brautina algjörlega úta fyrir okkur og miklu betra að einbeita sér að æfingunum. Æfingarnar verða annaðhvort í Bolöldu eða Álfsnesi, ég læt ykkur vita. Það komast 25 á námskeiðið (strákar & stelpur)10-15 ára. Verðið fyrir námskeiðið er 10.000- pr. einstakling en brautargjaldið er ekki innifalið í því.
Nánari upplýsingar og skráning er á gk@ktm.is Það sem þarf að koma fram við skráningu er:

Fullt nafn:
Sími:
Hjólategund:
Foreldri:
Sími:
Hvort vilt þú morgunæfingu eða kvöld?

Lesa meira af Motocross skóli í ágúst

Síða 6 af 6« Fyrsta...23456