|
Aron Ómarsson sigraði í síðustu umferð íslandsmótsins í motocross sem fram fór í blíðskaparveðri í Bolaöldum í dag. Einar Sigurðarson landaði þó titilinum í MX1 flokki. Gunnlaugur Karlsson varð Íslandsmeistari í MX2, Guðmundur Kort í 85cc flokki, Signý Stefánsdóttir í Opnum kvennaflokki, Bryndís Einarsdóttir í 85cc kvennaflokki og loks Sölvi B. Sveinsson í MX-unglingaflokki en þar var gríðarleg spenna í dag. 
Frétt Sjónvarpsins um keppnina Úrslitin úr keppninni Staðan í Íslandsmótinu Myndir frá motocross.vefalbum.is
Lesa meira af Aron sigraði en Einar Íslandsmeistari Ég kíkti í Bolaöldu um 6 leytið í kvöld og ástandið var nokkuð gott miðað við úrhellið fyrr í dag. Nokkur blaut svæði voru í brautinni en önnur svæði litu vel út. Startgrindurnar eru komnar upp en smáfrágangur var þar eftir. Aðstaðan er í toppmálum og stjórnarmeðlimir og fleiri unnu hörðum höndum við að koma öllu í toppstand fyrir keppnina. HÁ. Lesa meira af Ástandið í Bolaöldu
Keppnisstjórn VÍK hefur ákveðið að fresta 5. umferð Íslandsmótsins í Moto-Cross sem fara átti fram á morgun laugardaginn 30. ágúst. hefur verið frestað til sunnudagsins 31. ágúst. ATH ! að sjálsögðu er keyrt eftir sömu dagskrá og venjulega. Ástæða frestunar keppninnar er slæmt veður í nágrenni Reykjavíkur sem eftir veðurspám kemur til með að standa fram yfir hádegi á morgun, laugardag. Veðurspáin fyrir sunnudaginn er frábær léttskýjað, sól og 14c hiti. Sjáumst öll kát og hress kl: 9:00 á sunnudagsmorgun. Vinsamlega látið þetta berast á sem flesta og gott væri að keppendur hefðu samband sín á milli til að koma þessum skilaboðum áfram. kveðja, Keppnisstjórn VÍK Lesa meira af Keppni frestað fram á sunnudag
Keppendur og aðrir bíða spenntir eftir því hvort lokaumferðin verður á laugardag eða sunnudag. Nú þegar klukkustund er í ákvörðun keppnisstjórnar um keppnisdag lítur út fyrir áframhaldandi rigningu á morgun en bongóblíðu á sunnudag (www.vedur.is). Nokkuð víst er að brautin verði blaut og að 100 kúplinssett verða seld í umboðum landsins á mánudaginn en hátt í 100 keppendur eru einmitt skráðir til leik. Motocrosskeppnir eiga það til að draga að sér lægðir og rigningaský en ljóst er að allir keppendur sitja við sama borð og ekkert verður gefið eftir. Keppnin er hörð og góð barátta í mörgum flokkum þannig að áhorfendur eru hvattir til að mæta hvort sem þörf er á regnkápu eða ekki. Lesa meira af Fyrsta haustlægðin
Veðurspáinn fyrir föstudaginn 29. ágúst og laugardaginn 30. ágúst er slæm fyrir Reykjavíkursvæðið og hefur keppnisstjórn VÍK fyrir 5. umferð Íslandsmótsins í Moto-Cross sem fara á fram í Bolöldu laugardaginn 30. ágúst ákveðið að hugsanlega verði keppninni frestað til sunnudagsins 31. ágúst. Keppendur eru beðnir að fylgjast með tilkynningu sem birt verður á morgun, föstudag um kl: 15:00 þar sem endanleg ákvörðun verður tilkynnt. Ef veðurspá og veður gerir það að verkum að fresta þurfi keppninni til sunnudagsins mun að sjálfsögðu verða keyrt eftir sömu dagskrá og venjulega. Kveðja, Keppnisstjórn VÍK. Lesa meira af MX keppnin á laugardag????
 Motocross 06/07 DVD diskurinn sem kom út fyrir jólin í fyrra verður seldur í sjoppunni í Bolaöldu um helgina á hlægilegu verði, aðeins 2.000,- kr. fyrir tvöfaldan disk sem inniheldur allar motocrosskeppnir áranna 2006 og 2007. Þetta er skyldueign fyrir alla í sportinu. Takmarkað upplag. Einnig er hægt að panta diskinn með því að senda mail á msveins@simnet.is Lesa meira af Útsala! – Útsala! – Útsala! – Útsala!
Síða 1 af 612345...»Síðasta » | |