Skoðun hjóla hjá Ingvari Helgasyni á föstudag kl. 19-21

Skoðun á hjólum sem taka þátt í sjálfri Jónsmessuþolaksturskeppninni fer fram í húsnæði Ingvars Helgasonar við Sævarhöfða á föstudagskvöldið á milli 19 og 21. Einungis "neyðarskoðun" verður á laugardag til að minnka álagið á starfsmenn og því viljum við sjá sem flesta á föstudagskvöldið. Boðið verður upp á kók og pulsur og létta stemningu fyrir keppnina.

Keppnisnúmer og tímatökubólur verða afhentar í skoðuninni. Þeir sem eiga gamlar bólur frá Klaustri komi endilega með þær með sér. Keppendur þurfa að hafa með sér staðfestingu á tryggingu og skráningu hjólsins, ökuskírteini og undirrita ábyrgðaryfirlýsingu vegna keppninnar.

icon NIssan Plakat

Skildu eftir svar