Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Ekkert cross í sjónvarpinu

Allt stefnir í að það verði ekki sýnt frá Íslandsmótinu í Motocross í sjónvarpinu þetta árið, þar sem illa hefur gengið að fá styrktaraðila fyrir þáttinn. Ef einhver veit um fyrirtæki sem hefur áhuga á að "sponsora" þáttinn þá mætti hann hafa samband við Reyni í síma 898 8419 og fá frekari upplýsingar. Einnig hvetjum við þá sem eiga góðar upptökuvélar að mæta á næstu keppnir og taka upp efni til þess að eitthvað sé til á "filmu" eftir sumarið.

Lesa meira af Ekkert cross í sjónvarpinu


Námskeið í flöggun fyrir Sólbrekku

Enn vantar nokkra flaggara í Sólbrekkubraut á laugardaginn 7.júní n.k. Flaggarar fá mat á keppnisdag, gjafabréf frá mxsport ásamt brautarmiðum.
Fyrir þá sem hafa ekki flaggað áður eða vilja hressa uppá kunnáttuna ætlar VÍR að halda námskeið í flöggun. Námskeiðið verður haldið á Hringbraut 108 næst komandi fimmtudag 5 júní kl 20.00. Kristján Geir frá MX-Sport fer yfir öll helstu atriði varðandi flöggun.
Skráning í flöggunina á Sólbrekku eða námskeiðið er á netfang asgrimur450@simnet.is

Lesa meira af Námskeið í flöggun fyrir Sólbrekku


Framkvæmd Íslandsmótsins í Motocross MX1 og MX2 flokki

Keppnistímabilið 2008 gildir eftirfarandi túlkun á reglum. MX1 og MX2 flokkar fara í tímatökur og komast 15 fyrstu úr hvorum flokk áfram, þeir sem ekki ná inn fara í B flokk. Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu 3 sætin yfir heildina og sameiginleg stig fyrir heildina, sér verðlaun eru fyrir fyrstu 3 sætin í MX2 flokk. Breyting frá keppnistímabilinu 2007 er að nú reiknast sér stig fyrir MX2 flokk til Íslandsmeistara.

Til útskýringar getur MX2 keppandi lent í 2. sæti yfir daginn og fær sín stig fyrir það í heildarúrslitum, sami keppandi getur lent í 1. sæti í MX2 flokk og safnar þar sér stigum til Íslandsmeistara í MX2 flokk. MX2 ökumaður getur orðið Íslandsmeistari í MX1 og MX2 flokk.

Kveðja,
Enduro & Moto-Cross nefnd MSÍ

Lesa meira af Framkvæmd Íslandsmótsins í Motocross MX1 og MX2 flokki


Tilkynning frá MotoMos

Ágætu hjólamenn,
Við hjá MotoMos viljum taka það skýrt fram að það er stranglega bannað að hjóla í brautarstæðinu okkar og námunum þar í kring, ef einhver verður staðinn að því mun hann verða útilokaður frá brautinni um óákveðin tíma.
Vinsamlegast virðið þetta, því einn hjólamaður á röngum stað getur eyðilagt alla okkar brautardrauma.
Einungis örfáir aðilar úr brautarnefndinni hafa verið fengnir til þess að prufa kafla brautarinnar með það í huga að fullgera hönnun hennar.
Einnig langar okkur að nota þetta tækifæri og þakka þeim fjölmörgu sem hafa hjálpað okkur við brautarsmíðina fram að þessu.
 
Stjórn MotoMos.

Lesa meira af Tilkynning frá MotoMos


Sólbrekka lokar á morgun

Frá og með þriðjudeginum 3. júní verður Sólbrekka lokuð fram að keppnisdag. Allur akstur í brautinni er því óheimill, hvort sem menn hafa keypt miða eða ekki.
Einnig vill VÍR koma því á framfæri að allar auglýsingar inná brautinni eru ekki leyfðar á keppnisdag og geta því söluumboðin ekki flaggað fánum sínum eða öðru nema í pitt.
Kveðja, VÍR

Lesa meira af Sólbrekka lokar á morgun


Netviðtalið: Aron Ómarsson

Aron Ómarsson er landsliðsmaður í Motocrossi og þótti sigurstranglegur í Íslandsmótinu í sumar áður en hann lenti í óhappi í síðustu viku. Strákurinn kemur örugglega sterkur tilbaka þegar sárið er gróið og mun örugglega spjara sig vel í seinni hluta tímabilsins

Hvað er að frétta af þér? Fótbrotinn?
Já því miður að þá er ég ökklabrotinn :(

Hvernig atvikaðist það?
Ég var að æfa stört með

Lesa meira af Netviðtalið: Aron Ómarsson

Síða 10 af 10« Fyrsta...678910