Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Skemmtileg keppni á Álfsnesi

Keppnin í Álfsnesi í gær var skemmtileg og spennandi. Loksins var ekki grenjandi rigning í Álfsneskeppni, eins og undanfarin ár. Í staðinn var þó of mikill þurrkur og rokið setti strik í reikning áhorfenda. Keppendur létu það þó ekki á sig fá og gáfu sig alla í þetta. Eyþór Reynisson sigraði í 85cc flokki með talsverðum yfirburðum, Bryndís EInarsdóttir varð önnur og Ingvi Björn Birgisson þriðji. Eyþór náði einnig athyglisverðum árangri í MX-Unglingaflokki þar sem hann sigraði fyrsta moto-ið
Lesa meira af Skemmtileg keppni á Álfsnesi


Frétt RÚV frá Álfsnesi

Sjónvarpið birti í fréttatíma sínum í gær góða frétt af Íslandsmótinu í motocrossi í Álfsnesi. Smellið hér til að sjá fréttina.

Lesa meira af Frétt RÚV frá Álfsnesi


Valdimar á sigurbraut

Valdimar Þórðarson sigraði í íslandsmótinu í Motocrossi í dag á Álfsnesi en hann vann einmitt síðustu endúrókeppni líka. Annar í MX1 var Ragnar Ingi Stefánsson og þriðji Einar S. Sigurðarson.
Sölvi Sveinsson vann í MX Unglingaflokki, Bryndís Einarsdóttir í 85cc kvennaflokki, Eyþór Reynisson í 85cc karlaflokki, Signý Stefánsdóttir í opnum kvennaflokki og, Gunnlaugur Karlsson í MX2. Nánari fréttir hér síðar.
Á myndinni má sjá Valda sigra 3ja moto-ið en takið eftir á bakvið hann er Raggi. Aðeins munaði 0.16 sekúndum á þeim á marklínunni. Frábær lokasprettur hjá Ragga en dugði ekki alveg.

Lesa meira af Valdimar á sigurbraut


Allt að verða klárt fyrir helgina

Mikil rigning hefur einkennt keppnir á Álfsnesinu undanfarin ár og nú er nokkuð líklegt að menn verði að berjast við hvorn annan heldur en polla og drullu eins og venjulega. Líklega hefur rigningin í Sólbrekku um daginn dugað fyrir allt sumarið að margra mati. En þegar þurrkurinn er svona mikill er hægt að stjórna betur aðstæðum með því að vökva brautina hæfilega mikið með bílum sem þýðir að menn geta ekki kvartað yfir neinu og geta einbeitt sér að kappakstrinum. Þetta mun örugglega leiða til þess að menn mæti vel stemmdir til leiks og gefi allt í sölurnar, sem er skemmtilegast á að horfa.
Nú þegar hafa 140 manns skráð sig í keppnina í öllum flokkum. Þegar allir hafa skráð sig (enn er hægt að skrá sig en greiða verður skussagjald) er ekki ólíklegt að metþátttaka verði í keppninni. Nú þegar eru unglingaflokkurinn og kvennaflokkurinn orðnir allsvakalega fjölmennir. Grillvagninn verður á svæðinu og selur borgara ofl. og ef einhverjir hafa áhuga á að setja upp sölutjöld (með öðru en mat) þá er það leyfilegt.

Við á motocross.is viljum hvertja alla sem crosshanska geta valdið að mæta á svæðið til að njóta dýrðarinnar í öllu sínu veldi. Keppnin byrjar klukkan 12.10 en MX1 byrjar klukkan á mínútunni 14.03. Munið eftir sólarvörninni.

Sjá skráða keppendur

Lesa meira af Allt að verða klárt fyrir helgina


N-Gage á leið til landsins

Um miðjan júlí koma kennararnir frá N-Gage til landsins og halda nokkur námskeið. Margir flokkar eru í boði og er kennt allt frá krökkum á 65cc hjólum og uppúr, hvort sem menn eru byrjendur eða lengra komnir. Endilega skoðið bæklinginn frá þeim hér eða kíkið á heimasíðuna þeirra hér.
Tengiliðurinn þeirra á íslandi er Elías og hann er með elias@jardmotun.is

Lesa meira af N-Gage á leið til landsins


Flaggarar óskast – skráning enn opin

Enn vantar nokkra góða flaggara í Álfsneskeppnina á laugardaginn. Spáin er gríðarlega góð, í boði fyrir starfið er matur frá KFC yfir daginn, 6 miðar í brautirnar og frábært útsýni yfir keppnina. Þeir sem vilja hjálpa sendi póst á einarb@bernhard.is eða hringi í síma 824 1131 :) Yfir 130 manns eru skráðir í keppnina – skráningin er enn opin á msisport.is fram á kvöld.

Lesa meira af Flaggarar óskast – skráning enn opin

Síða 1 af 1012345...Síðasta »