Skráning í 1. & 2. umferð Íslandsmótsins í Enduro

Skráning í 1. & 2. umferð Íslandsmóts MSÍ í Enduro sem fram fer í Bolaöldu 17. maí. mun hefjast kl. 14:00,  þriðjudaginn 13. maí á www.msisport.is
Vegna síðbúinnar ákvörðunar stjórnar MSÍ að færa leigu og sölu á AMB tímatökusendum til Nítró ehf. þá hafa skapast tæknileg vandamál vegna skráningar á netinu og byðst stjórn MSÍ afsökunar á þessu.
Skráning í þessa keppni mun því standa til kl. 23.55 á miðvikudaginn 14. maí. Þeir keppendur …

..sem ekki eiga AMB tímatökusendi (TranX 260) og þurfa á leigusendi að halda er bent á að hafa samband við Nítró á þriðjudaginn 13. maí og skrá sig á leigusendi.
Þessi 1. & 2. umferð Íslandsmótsins í Enduro er haldin í Bolaöldu, akstursíþróttasvæði VÍK v/ Litlu Kaffistofuna. Brautin sem verður lögð verður á svæðinu fyrir ofan motocrossbrautina og mun verða öllum B flokks ökumönnum fær. Sérkaflar verða lagðir með krefjandi þrautum fyrir A flokk og ættu allir keppendur hvort heldur sem þeir keppa í B eða A flokk að fá skemmtilega keppnisbraut.
með kveðju, Stjórn MSÍ.

Skildu eftir svar