Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Myndir

Dalli ljósmyndari hefur sett inn myndasafn á netið frá keppninni á laugardaginn. Smellið hér til að kíkja á myndirnar.

Lesa meira af Myndir


Innskráning hikstar

Innskráningar- og lykilorðakerfið hér á motocross.is hefur verið að hiksta uppá síðkastið. Þeir sem hafa skráð sig og notað hotmail-addressu hafa margir lent í spamfilternum því kerfið verður fyrir miklu álagi af einhverjum spömmurum. Einnig hafa einhverjir með venjulegar addressur stoppað í síunni.

Ef "týnt lykilorð" takkinn virkar ekki, sendið fyrirspurn á vefstjori@motocross.is og við reynum að redda málunum.

Lesa meira af Innskráning hikstar


Enduro-svæðið í Bolaöldum OPNAR!

Frístunda-slóðar í Bolaöldum OPNA!
Sunnudaginn 18.maí mun Enduro-svæðið okkar í Bolaöldum opna aftur eftir vetrardvala.
Allt svæðið er opið, þó svo að ekki séu allar leiðir færar vegna snjóskafla og er allur akstur út fyrir leiðir og meðfram snjósköflum bannaður.
Það er gleðiefni hversu fáir hafa vanvirt lokanirnar í vor, og teljast þeir fingrum annarar handar, af þeim fjölda þúsunda sem almennt nýta svæðið.
Góða skemmtun!

Lesa meira af Enduro-svæðið í Bolaöldum OPNAR!


Valdi sigurvegari dagsins

Valdimar Þórðarson vann sigur í A-flokki í endurókeppninni sem fór fram í Bolaöldu í dag. Einar Sigurðarson varð í öðru sæti með jafn mörg stig og Valdimar, en sá síðarnefndi vann seinni umferðina og er því sigurvegari dagsins. Aron Ómarsson var svo í þriðja sæti. Í B-flokki var líka hörku keppni, en þar sigraði Ingvar Birkir Einarsson, annar var Kjartan Gunnarsson og þriðji Hákon Andrason. Staðfest úrslit verða svo birt hérna fljótlega og myndir eru komnar inn á www.motocross.vefalbum.is.

Lesa meira af Valdi sigurvegari dagsins


Endúrókeppni í dag

Nú er um að gera að drífa sig uppí Bolöldu og horfa á fyrstu umferðina í Íslandsmótinu í Enduro. Vel yfir 200 keppendur eru í 2 flokkum og keppt verður í allan dag. Allir bestu ökumenn landsins eru skráðir til keppni og líklega einn eða tveir nýliðar. Áhorfndur eru velkomnir og góð aðstaða er til að horfa á keppnina í Bolöldu. Aðgangseyrir er að svæðinu og er honum stillt í hóf.

Til að komast að Bolöldu er keyrt austur þjóðveg 1 og beygt til hægri á móts við Litlu Kaffistofuna í Svínahrauni.

Lesa meira af Endúrókeppni í dag


Grein um Motocross í Mónitor

Tónlistar- og lífstílsblaðið Mónitor komst á hærra plan um daginn er þeir birtu skemmilegan myndaflokk um motocross og motocross ökumenn. Birt eru viðtöl við nokkra "fræga" í sportinu og ýmislegt annað.

Kíkið á blaðið hér (20mb .pdf) og flettið á blaðsíðu 43

Lesa meira af Grein um Motocross í Mónitor

Síða 5 af 10« Fyrsta...34567...Síðasta »