Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Björgunarmótorhjól

Á mbl.is í dag má lesa um forláta björgunarmótorhjól sem Slökkvilið höfuðborgarsvæisins er að nota.
Hjólið er hlaðið útbúnaði sem nauðsynlegur er við bráðaútköll en vísast skiptir þó öllu máli að sá sem keyrir gripinn kunni vel til verka.  Greinina má sjá hér.

Lesa meira af Björgunarmótorhjól


Fulltrúi VÍK á slóða-ráðstefnu í USA

Nú stendur yfir ráðstefna National off-higway vehicle conservation council (NOHVCC) í Nýju Mexikó, Bandaríkjunum.  Fulltrúi Íslands er Ásgeir Örn Rúnarsson og hélt hann utan á páskadag.  Það er Vélhjólaíþróttafélagið VÍK sem greiðir götu Ásgeirs, en þetta er í annað skipti sem VÍK sendir fulltrúa út á ráðstefnuna.  Þeir sem vilja fylgjast með Ásgeiri er bent á skoða bloggsíðu Hjólavillinga, en þar eru dagbókarfærslur og myndir.  Þann 23. apríl mun Ásgeir svo halda fyrirlestur um ráðstefnuna og þann lærdóm sem draga má af henni.  Fyrirlesturinn verður auglýstur betur þegar nær dregur.

Lesa meira af Fulltrúi VÍK á slóða-ráðstefnu í USA


MX brautinni á Hellu lokað

Flugbjörgunarsveitin á Hellu vill koma því á framfæri að Motocrossbraut sú sem við höfum rekið frá októbermánuði hefur verið lokað. Þessi braut verður ekki opnuð aftur en stefnt er að opnun brautar í næsta nágrenni við þessa.
Einnig viljum við ítreka það að ÖLL umferð mótorhjóla er stranglega bönnuð á brautinni og á svæðinu í kring þ.m.t. gilið sem torfæran hefur verið haldin í.
 
Virðingarfyllst,
 
Svanur Lárusson
Formaður F.B.S.H.

Lesa meira af MX brautinni á Hellu lokað


Hætturnar leynast víða

Ökumaður torfærumótorhjóls sem var á ferð með þremur öðrum á Sólheimasandi í morgun missti hjólið undan sér er þeir óku yfir ósa árinnar Klifanda. Brimið var það mikið og útsog sterkt að öldurnar báru hjólið á haf út.

„Hann var heppinn að fara ekki með hjólinu," sagði varðstjóri lögreglunnar á Hvolsvelli í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins.

Að sögn lögreglunnar var maðurinn að bisa við að rétta hjólið við er undiraldan tók það og félagi mannsins kom honum til aðstoðar og kom honum á þurrt.

Óhappið varð um klukkan ellefu í morgun.

Tekið af mbl.is

Lesa meira af Hætturnar leynast víða


Starfshópur um ferlamál

Ferðafélagið 4×4 hefur stofnað starfshóp um GPS-ferla.  Innan ráðsins eru þrír þekktir vélhjólamenn þeir; Vilhjálmur Freyr Jónsson, Jakob Þór Guðbjartsson og Ásgeir Örn Rúnarsson.
F4x4 er í nánu samstarfi við Umhverfisráðuneytið um ferlun slóða og hefur unnið skipulega að söfnun þeirra undanfarin ár, með Jón G Snæland í fararbroddi. Klára á að ferla miðhálendið í sumar, af kröfu ráðuneytisins  Nauðsynlegt er fyrir alla sem eiga ferla af slóðum á hálendinu utan vegakerfis Vegagerðarinnar, að koma ferlunum sínum á frammfæri við starfshópinn!  Slóðar sem ekki er vitneskja um verða sjálkrafa ólöglegir eftir að skipulagsvinnu líkur.
Þeir sem hafa áhuga á að sðstoða við ferlum er bent á að hafa samband við starfshópinn, því ekki er hægt að klára alla þá vinnu sem eftir er án aðstoðar félagsmanna!

ferlarad@f4x4.is

http://www.f4x4.is/new/news/default.aspx?file=489

Lesa meira af Starfshópur um ferlamál


Bréf frá bónda í Þykkvabæ

Góðan dag,

Nokkrir ábúendur í Þykkvabæ eru orðnir ansi þreyttir á umferð hjóla í Þykkvabænum.  Ástandið er orðið hreint út sagt eins og að búa við Laugaveginn nema hvað umferðarhraðinn er talsvert meiri.

Íbúðarhúsið mitt er t.d. rétt við veginn og útihúsin hinum megin við veginn – umferðarhraðinn er að lágmarki 90 km/klst framhjá stofuglugganum hjá mér.

Hávaðinn frá hjólunum er mjög þreytandi og engu líkara en að einhver sé að vinna allar helgar með loftpressu í nágrenninu.

Lesa meira af Bréf frá bónda í Þykkvabæ

Síða 1 af 41234