Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Skýrsla Umhverfisnefndar

Umrædd skýrsla sem Siv nefnir var skilað til Umhverfisráðuneytisins síðustu daga s.l. árs.
Skýrslan hefur verið lengi í smíðum og báru nefndarmenn Umhverfisnefndar VÍK, hitann og þungan af vinnunni.
Góðir punktar og athugasemdir komu frá öðrum nefndarmönnum og var fullt tillit tekið til þeirra.
Hér meðfylgjandi er skýrslan í heild sinni ásamt fylgibréfi til ráðherra.
Spennandi verður að heyra svör ráðherra við fyrirspurnum Sivjar.

Aðstöðu og lagaumhverfi vélhjóla.pdf

Fylgibréf til ráðherra.pdf


Alþingi ræðir vélhjól

Sælir félagar.

Í gær var dreift á Alþingi fyrirspurn minni til umhverfisráðherra um stöðu vélhjólaaksturs á  Íslandi. Fyrirspurnin tengist skýrslu sem unnin var af félögum úr umhverfisnefnd VÍK og öðrum hagsmunaaðilum s.s. Umhverfisstofnun, Sambandi íslenskar sveitarfélaga, Vegagerðinni og Landvernd . Félagar sem unnið hafa að skýrslunni eru  aðallega þeir Jakob Þór Guðbjartsson, Leópold Sveinsson, Gunnar Bragason, Einar Sverrisson og Ólafur Guðgeirsson.  Þar sem ég bið um skriflegt svar má búast við að ráðherrann skili því inn á Alþingi eftir 2-3 vikur.

Hér er fyrirspurnin http://www.althingi.is/altext/135/s/0600.html

Hér er umhverfisnefnd VÍK að störfum  http://siv.is/i_mynd/myndir.lasso?id=11299

Kveðja,

Siv Friðleifsdóttir.

Lesa meira af Alþingi ræðir vélhjól

Síða 5 af 512345