Dagskrá: Mývatn 2008

Nú liggur fyrir endanleg dagskrá fyrir eina stærstu akstursíþróttahelgi ársins – MÝVATN 2008.
Allar nánari upplýsingar um mótshelgina veitir starfsfólk Mývatn ehf í síma 464-4164 eða á myvatn@myvatn.is.


Mývatn 2008 7-8. mars.
Dagskrá.
Föstudagur 7. mars.
Kl. 14:00    Samhliða brautarkeppni á vélsleðum.
Kl. 16:30    Hillcross á vélsleðum.
Kl. 18:00    Jarðböðin við Mývatn bjóða keppendum í bað.
Kl. 21:00    Setning Mývatn 2008 við Sel-Hótel Mývatn.
Kl. 21:00    Keppendur kynntir.
Kl. 21:30    Barkvöld með lifandi tónlist – tilvalið að koma sér í gírinn.

Laugardagur 8. mars
Kl.   8:00    Mæting og skoðun mótorhjóla fyrir íscross.
Kl.   9:00    Timataka fyrir íscross hefst.
Kl.   9:40    Íscross á mótorhjólum 1. móto.
Kl. 10:20    Íscross á mótorhjólum 2. móto.
Kl. 11:00    Íscross á mótorhjólum 3. móto.
Kl. 12:00    Mæting og skoðun vélsleða fyrir snocross.
Kl. 13:00    Tímataka fyrir snocross hefst.
Kl. 14:00    Snocross keppni hefst.
Kl. 17:30    Ísspyrna á snjósleðum.

Kl. 20:00    Fordrykkur og vídosýning af afrekum dagsins.
Kl. 21:00    Veisla kvöldsins hefst í Skjólbrekku.
Kl. 21:30    Verðlaunaafhending fyrir afrek helgarinnar.
Kl. 23:00    Dansleikur með hljómsveitinni Von.

Hillcross.
Keppt er í einum flokki þar sem allar vélastærðir eru leyfðar. Valin er brött brekka ca 300m löng (fer eftir aðstæðum hverju sinni). Þrír keppendur ræstir í einu og ekið upp brekkuna sem er með stöllum af bestu gerð. Sá sem kemur fyrstur upp kemst áfram í næstu umferð. Keppnishaldarar áskilja sér allan rétt til að móta reglur að aðstæðum hverju sinni.

Ískross á mótorhjólum.
Ekinn er braut á Mývatni sem er um 2 km löng, keppt er í tveimur flokkum standardflokki og kvennaflokki. Byrjað er á tímatöku og síðan eru ekin 3 móto í hverjum flokki, hvert þeirra tekur um 15 mínútur.

Samhliða brautarkeppni – þessi gamla góða.
Brautin er um 400-600 m löng og er tvöföld, innri og ytri hringur með hliðum sem þarf að fara í gegnum, gefin eru refsistig (5 sekúndur) fyrir að fella hlið. Allir fara í gegnum tímatöku og 8 bestu tímar komast í úrslit. Úrslitin er útsláttur sem endar með einum sigurvegara. Keppt er í tveimur flokkum opinn flokkur og heldri manna flokkur +35 ára.

Ísspyrna.
Brautin er 201 metrar og er á glærum ís. Keppt er í einum flokki opinn flokkur snjósleða og er flest leyft. Fyrst er tímataka til að fá uppröðun og svo einfaldur útsláttur.

Snocross.
1.    Keppni er samansett úr 3 hítum.  
2.    Riðlar eru ca 12 – 15 mín.
3.    Stigagjöf í öllum riðlum er 25,22,20,18,16,15,14,13 o.s.frv.
4.    Braut skal ekki vera styttri en 600m meira ef hægt er.
5.    Breidd brautar skal vera um 8,5m (lágmark 2 troðarabreiddir).
6.    Örygggisbúnaður: Sami skyldubúnaður í brynju og hnéspelkum í öllum flokkum, einnig er skylda að hafa hálskraga undir hjálmi í öllum flokkum.
7.    Meistaraflokkur: 600cc (opinn flokkur) Allar helstu breytingar leyfðar, vél, kúplingar, púst, racing fuel. Undanþága 1: eldri sleðar en 2006 og allt að 800cc leyfðir m/racing fue
8.    Sportflokkur opinn: 600cc (opinn flokkur), ) Allar helstu breytingar leyfðar, vél, kúplingar, púst, racing fuel. Undanþága 1: 2007 Racing 440cc og eldri sleðar en 2006 og eldri allt að 800cc leyfðir m/racing fuel.
9.    Unglingaflokkur: 600cc (standard flokkur), dælubensín engar breytingar leyfðar nema á kúpl drif og blöndungum (-100okt). Naglar ekki leyfðir. Undanþága 1: 2007 Racing 440cc og eldir leyfðir m/racing fuel

KEPPNISDAGATAL SNOCROSS 2008

Keppnisgrein    Dagsetning    Tegund    Staður
Snocross    2. febrúar    Íslandsmót    Reykjavík
Snocross    9. febrúar    Íslandsmót    Ólafsfjörður
Snocross    23. febrúar    Íslandsmót    Akureyri
Snocross    7-10 mars    Íslandsmót    Mývatn
Snocross    22. mars    Íslandsmót    Húsavík
Snocross    12. apríl    Alþjóðlegt / Íslandsmót    TBA

Skildu eftir svar