Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Ný íslensk þáttaröð


Í sumar sem leið, tóku nokkrir drengir (Einar, Andri, Gummi, Gulli og Danni) uppá því að smíða sér fjarstýrðan bíl. Það er svo ekkert merkilegt við það, nema að þessi bíll var Toyota Corolla !!!………….já full size bíll. Ekki er alveg vitað hvaðan þessi fluga kom í hausinn á þeim, kannski að norðan. Sjónvarpsþátturinn Top Gear, með þá, Jeremy Clarkson, James May (captain slow) og Richard Hammond (the hamster), innanborðs, hefur gert viðlíka tilraun með venjulega bíla og tókst vel upp. Strákarnir toppuðu þá að mínu mati, tekin var tjónuð Corolla, gerð fjarstýrð á einum degi og leikið sér. Þeir tóku allt upp á videó og komu efninu til tæknideildar W&V til úrvinnslu. Nú hefur undirritaður setið sveittur við vinnslu og er allt klárt, eða svona hérumbil, kannski, meibí.
Lesa meira af Ný íslensk þáttaröð


Dakar rallið að hefjast

Þann 5. janúar næstkomandi fara keppendur af stað í Dakar rallinu en því lýkur svo þann 20 janúar, er þetta er í 30. skipti sem keppnin er haldin.

Þáttaka í þessi langa ralli eykst með hverju ári sem líður, í fyrra var metþáttaka en þá hófu 510 ökutæki keppni og luku 310 af þeim keppni, nokkuð var um meiðsli og einnig 2 dauðaslys og voru það bæði úr röðum hjólamanna sem léttust.
Ekki hefur verið gefin endanlegur keppendalisti út ennþá en síðasti listi sem er frá 21 nóvember taldi 245 mótorhjól, 20 fjórhjól, 205 bíla og 100 trukka eða samtals 570 ökutæki og á eftir að fjölga.

Tvöfaldur sigurvegari í hjólaflokki Cyril Despres (KTM) er skráður til leiks, einnig Marc Coma (KTM) sem varð að hætta keppni í fyrra vegna slyss en hann hafði þá leitt nánast allan tímann og bara 2 dagar eftir, flestir af toppökumönnum síðustu ára hafa einnig skráð sig.

Lesa meira af Dakar rallið að hefjast


Myndir af ísnum

Nokkrar myndir af íscrossi eru hér
 
Með bestu kveðju
Dalli

Lesa meira af Myndir af ísnum


Bryndís íþróttamaður ársins hjá AÍH

Bryndís Einarsdóttir var valin Íþróttamaður ársins af stjórn AÍH.  Bryndís hefur verið félaginu til sóma jafnt innan vallar sem utan og varð meðal annars Íslandsmeistari í 85cc kvennaflokki á árinu.  Hún hefur lagt mikið á sig og sýnt ótrúlegar framfarir á árinu.  Bryndís ætlar sér að halda áfram á sömu braut og heldur utan í febrúar til æfinga hjá Harry Everts á Spáni.  Hún tók einnig á móti viðurkenningu frá Hafnafjarðarbæ í gær út hendi Bæjarstjórans og var þessi mynd tekin við það tækifæri.

Af vef AÍH

Lesa meira af Bryndís íþróttamaður ársins hjá AÍH


Afsláttur á flugeldum

Hann Stefán Briem er með flugeldasölu í Valsheimilinu og vill bjóða öllum félagsmönnum VÍK 26% afslátt á flugeldum. Heitt á könnunni, endilega lítið við. 

Kveðja, 
Stefán Briem

Lesa meira af Afsláttur á flugeldum


Flugeldar

Við bjóðum VÍK félagsmönnum 25% afslátt af flugeldum á sölustöðum okkar.
Sölustaðirnir eru eftirfarandi: Norðlingaholt við Grillskálann ( bláir gámar ), Smiðjuvegur 6 græn gata ( bláir gámar ) og Stórhöfði 24 í húsnæði "Bílasalan.is."
Einnig fyrir þá sem eru sprengi – brjálaðir ( KAUPA MIKIÐ ) " Leitið tilboða í pakkann"
Félagsmenn! sýnið félagsskírteinið til að fá afsláttinn.
 
Gæðaflugeldar óska félagsmönnum gleðilegra áramóta og farsæls komandi árs.
Guð gefi ykkur fullt gas og engar bremsur. En farið samt varlega með flugeldana.
 
Óli Gísla VÍK félagsmaður.
 
Lesa meira af Flugeldar

Síða 1 af 512345