Nú þegar árshátíðin er að bresta á, óskar motocross.is fólki góðrar skemmtunar… gangið hægt um gleðinnar dyr
Lesa meira af Gleðilega hátíð
Nú þegar árshátíðin er að bresta á, óskar motocross.is fólki góðrar skemmtunar… gangið hægt um gleðinnar dyr Að gefnu tilefni viljum við biðja fólk um að mæta tímanlega á árshátíðina á morgun. Húsið opnar kl. 19 og forrétturinn verður borinn fram á slaginu kl. 20. Þétt dagskrá verður allt kvöldið og að sjálfsögðu munum við veita verðlaun fyrir síðasta keppnistímabil ásamt því að útdeila ýmsum öðrum viðurkenningum. Miðasala hefur slegið öll met og má segja að það sé orðið uppselt. Helga í Moto gæti þó lumað á örfáum ósóttum pöntunum ef einhver hefur ekki enn tryggt sér miða. Munið svo bara að mæta með góða skapið með ykkur á morgun. Um leið og við viljum hvetja sem flesta til þess að mæta á verðlaunaafhendingu MSÍ á laugardaginn þá viljum við einnig biðja verðlaunahafa að gera okkur þann greiða að lána okkur bikarana aftur til þess að við getum veitt þá um kvöldið eins og venja hefur verið hingað til. Skemmtinefndin Vegna fjölda áskoranna hefur miðasala á Árshátíðina verið lengd um einn dag, Íslandsvinurinn David Knight varð núna um helgina þriðji einstaklingurinn í sögunni sem unnið hefur bæði ISDN, WEC og GNCC. Hann er þar í hópi með Shane Watts og finnanum rólinda, Juha Salminen. Tímabilið byrjaði ekki vel hjá David en á endanum hafði hann þó sjö sigra og fyrir síðustu umferðina var það aðeins Barry Hawk sem átti tæknilegan möguleika á því að "stela" titlinum af "Riddaranum" frá Mön.
| ||