Íslenskar konur að taka þátt í stærstu motocrosskeppni kvenna í heimi

Í gær, sunnudag, lögðu af stað  5 vaskar konur til að taka þátt í stærstu keppni sinnar tegundar fyrir konur.  En þetta er WMA CUP ’07, sem er opin bikarkeppni í Bandaríkjunum.  Í þessari keppni eru skráðar margar af helstu kvennökumönnum heimsins í dag og má þar nefna Tarah Gieger o.fl.


Að sjálfsögðu eigum við á litla Íslandi 5 keppendur í þessari keppni eins og áður hefur verið sagt og eru það eftirfarandi kjarnakonurnar í stafrófsröð:

Aníta Hauksdóttir #310

Björk „brjálaða Bína“ Erlingsdóttir #656

Karen Arnardóttir #132

Margrét Mjöll Sverrisdóttir #686

Theódóra „Tedda í Nitró“ Heimisdóttir #610

Með þeim í för eru Haukur, Sverrir og Óliver Örn.  Haukur mun jafnframt taka þátt í keppni sem verður haldin þarna samhliða.  Sverrir mun reyna að koma upplýsingum á framfæri í gegnum bloggsíðuna sína www.sveppagreifinn.blog.is og einnig mun hann senda póst á motocross.is. 

Við óskum keppendum velfarnaðar í þessari stóru keppni og hlökkum til að fylgjast með ferðasögunni.  En hér má finna upplýsingar um keppnina (http://www.womensmotocrossassociation.com/)  og einnig blaðatilkynningu þar sem íslensku keppendurnir eru að sjálfsögðu nafngreindir sérstaklega (http://www.womensmotocrossassociation.com/news/2007/news_World_Champ_11-09-07.htm)

 

 

Skildu eftir svar