Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Kjarnakonur í Texas

Um síðustu helgi fóru fimm kjarnakonur til Floresville í Texas til að taka þátt í einu stærsta bikarmóti kvenna í motocrossi í Ameríku.  Keppnin heitir WMA Drill Tech Cup ’07 og voru engin smá nöfn sem voru á meðal keppenda sem kepptu í "Pro" flokknum og má þar nefna Katherine Prumm sem er núverandi FIM heimsmeistari kvenna, Elin Mann frá Svíþjóð, Sherri Cruse frá USA, Ashley Fiolek sem er ótrúlegt efni og er aðeins 16 ára gömul.  En Ashley er jafnframt heyrnarlaus og því er árangur hennar ennþá áhugaverðari.  Tarah Gieger guggnaði á því að koma og spurningin er hvort hún hafi þorað að mæta Katherine Prumm?  Það verður þó að telja að veðurfarslegar ástæður hafi dregið úr áhuga hennar frekar en sjálf samkeppnin. En aðstæður fyrri hluta keppninnar voru jafn góðar eins og þær urðu erfiðar í seinna hluta keppninnar, þegar að það fór allt á flot síðustu 2 dagana af mótinu.  Varð brautin eitt drullusvað og mjög sleip.  Áttu mjög margir keppendur í miklum erfiðleikum við þessar aðstæður. 

Lesa meira af Kjarnakonur í Texas


Hjóli stolið !

Á fimmtudaginn síðasta sáu einhverjir óprúttnir menn ástæðu til að fara að heimili Kobba og Herdísar á Svalbarðseyri og stela hjólinu hennar Herdísar Terra Moto hjóli með hvítum plöstum nema hvað frambretti er rautt. Það eru einnig séreinkenni sem að Kobbi veit um á hjólinu þannig að það mun þekkjast hvar sem er þannig að við skorum á þessa aðila að skila þessu hjóli sem allra fyrst.
Ef að einhver hefur orðið var við þessa aðila með hjólið þá vinnsamlegast látið lögregluna á Akureyri vita eða Kobba í síma 899-9890.
Lesa meira af Hjóli stolið !


Íscross á Mývatni

Við höfum ákveðið að halda 3 mót í Íscrossi á Mývatni í vetur.Við ætlum að standa vel að framkvæmdinni og það verða vegleg verðlaun í boði. Það er stefnt að því að keppa líka í ísspyrnu á vélsleðum þessar helgar. Skráning verður í gegnum félagakerfið á www.msisport.is og notast verður við tímatökusendana eins og í motocrossinu. Við sendum nánari dagskrá um leið og hún liggur fyrir. Ákveðið hefur verið að stilla þátttökugjaldinu í hóf og verður það kr 3000.

Smellið hér fyrir plakatið
 
Kveðja úr Mývatnssveitinni,
 
Stefán Gunnarsson

Lesa meira af Íscross á Mývatni


Afhending Off Road verðlauna FIM

Afhending Off Road verðlauna FIM fer fram í Monte Carlo um næstu helgi.

Eftir en eitt stórkostlega tímabilið í Off Road mótorsporti þá er komin tími til að fagna meisturunum og það gerist á hinni skemmtilegu og flottustu FIM Off Road verðlaunaafhendingunni sem fer fram laugardaginn 1 desember.

Þessi afhöfn fór fyrst fram árið 2005 og er hún í boði Youthstream sem fannst vera komin tími til að keppendur í Off Road Mótorsporti fengju uppskeruhátíð sem hæfði þeim og þessi verðlaunaafhending bæði fyrir meistara í Heimsmeistara- og Evrópumeistarakeppninni.

Lesa meira af Afhending Off Road verðlauna FIM


Fjör í Þorlákshöfn

MXsport.is var á ferð í gær, laugardag, og tók nokkrar myndir af þeim hópi sem voru í brautinni þar.  Veðrið var frábært og brautin enn betri.  Mjög gott starf sem MX Þórsarar eru að vinna þarna.  Þú getur séð myndirnar á þessum hlekk hér

Lesa meira af Fjör í Þorlákshöfn


Bolaalda frosin í dag

Því miður gekk frostleysið ekki eftir í dag og því er Bolaöldubrautin frosin og lítið spennandi til aksturs í dag. Á morgun er spáð frostlausu en hvort það dugi til að þýða brautina verður að koma í ljós á morgun.
Lesa meira af Bolaalda frosin í dag

Síða 1 af 512345