Reglur fyrir Langasandskeppnina

1. Hjól verða að vera skráð og tryggð. ( Mjög áríðandi og verður fylgt eftir þar sem keppnin er innanbæjar )

2. Greiðsla keppnisgjalda og skráning verður á skráningarkerfi MSÍ.


3.     Öll umfrerð annara en keppnistækja og starfamanna er óheimil á sandinum. ( Pitthjól, krakkahjól, trialhjól) BANNAÐ…) Lögreglan verður á svæðinu.

4.     Prjónkeppni, keppendur ráða hvort tekið er af stað úr kyrrstöðu eða með atrenu frá ákveðnum punkti, sá vinnur er keyrir lengst á afturdekkinu.  

5.      Keppendur og gestir verða að sýna aðgát við umhverfið og áhorfendur. Öll meðferð bensíns og olíu skal vera í algjöru lámarki á pittsvæði. Keppnin er innabæjar og verðum við þess vegna að sýna að okkur sé treystandi fyrir svona umhverfi. Pitturinn er staðsetur fyrir norðan Akraneshöllina. (milli Langasands og Akraneshallar)  Keyrt er niður með Akraneshöllinni að austanverðu inná pittsvæði. 

6.   Frítt er í sund eftir keppnina fyrir alla keppendur í  Sundlaugina á Akranesi. ( Rétt við keppnissvæðið ) 

7.   ALLIR SEM TAKA ÞÁTT OG EINNIG ÞEIR SEM KOMA SEM AÐSTOÐARMENN EÐA ÁHORFENDUR VERÐA AÐ TAKA MEÐ SÉR GÓÐA SKAPIÐ OG HAFA GAMAN AF ÞESSU.  

Skildu eftir svar