Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Jákvæðni hjá Skessuhorni

Vefurinn Skessuhorn á Vesturlandi er aðeins jákvæðari en Mogginn… Grein þeirra frá því í gær byrjar svona:

Hitað upp fyrir náttúruvæna vélhjólakeppni

Í dag heldur Vélhjólaíþróttafélag Akraness keppni í vélhjólaakstri á Langasandi. Nú laust fyrir hádegi var verið að gera keppnisbrautir tilbúnar á sandinum en fyrirhugað var að hefja prjónkeppni laust eftir klukkan 12 og síðan verður keppt í þolakstri og hindranaakstri. Um svokallaða enduro/cross keppni er að ræða, en það er sambland af tvenns konar keppni. Enduro er þolakstur og stendur slík keppni yfirleitt yfir í um einn og hálfan tíma. Í crossi er hins vegar keppt í hindrunarakstri með alls kyns þrautum og stökkpöllum. Ernir Freyr Sigurðsson, einn af aðstandendum keppninnar, segir blöndu þessara tveggja gerða keppni vera mjög sérstaka. „Þetta er nánast einstakt hjá okkur og ræðst af aðstæðum á Langasandi. Það góða við þennan keppnisstað er að við göngum frá öllu fyrir flóð í dag og á morgun á fjöru verða engin merki um að þar hafi farið fram keppni.”

Greinina í heild sinni má lesa “hér” og væntanlega verði fleiri fréttir af keppninni einnig á vefnum þeirra.


Moggin lýgur ekki

Mbl.is sá ástæðu til að birta þessa “frétt” í dag.

Slasaðist á mótorkrosshjóli

Unglingspiltur slasaðist lítillega í malarnámu við Þorlákshafnarveg um klukkan hálfátta í gærkvöldi en þar var hann á svokölluðu mótorkrosshjóli. Pilturinn er aðeins fjórtán ára og hafði því ekki náð aldri til að stjórna vélhjóli.

Hefði ekki verið nær að birta jákvæða frétt af landsliðinu í sinni fyrstu ferð erlendis eða þeirri miklu uppbyggingu sem félögin í landinu eru að setja í barna- og unglingastarf?


Langisandur – myndir

Hér eru myndir sem Dagur Brynjólfsson tók á Akranesi í gær.
Lesa meira af Langisandur – myndir


Vinnudagur á Bolaöldu á sunnudaginn kl. 10

Sæl öll, við Guðberg vorum að ræða saman um að kíkja upp á svæði á sunnudagsmorguninn og taka til hendinni fyrir veturinn. Það þarf að týna saman plast og stikur eftir keppnina og ganga frá og laga til á svæðinu fyrir veturinn. Verkefni sem þarf að taka er t.d. að klára girðingarvinnuna, breyta innkeyrslunni í endurbrautirnar og loka bílastæðið betur frá endurslóðunum. Setja gler í hurðarnar, ganga í rafmagnsmál (ofna og inntak á alvörustraum), tengja háþrýstidælur, laga girðingar og ýmislegt annað snikk.

Þeir sem hafa ekki komið upp eftir sl. viku vita væntanlega ekki stöðuna en nú er

Lesa meira af Vinnudagur á Bolaöldu á sunnudaginn kl. 10


Opinber dagskrá fyrir Langasand

Dagskrá fyrir Langasand 2007
 
Skoðun kl: 10-12   Hjól þurfa að vera skráð, tryggð og með keppnisviðauka.
Prjónkeppni  11:30  Ein æfingaferð, ein útsláttarferð (þarf að komast c.a 400 m) þrjár úrslitaferðir, sá vinnur sem kemst lengst. Bráðabani ef ekki ráðast úrslit.
Mx1, mx2, unglingaflokkur og B-flokkur kl 13:00
Kvenna og 85cc kl: 14:00
10 manna úrslit kl: 14:40
Mæting á ráslínu 10 min fyrir start.
Verðlaunaafhending  kl: 15:30, verður í Akraneshöll.

Frítt í sund fyrir keppendur í boði Honda-Bernhard.
Góða skemmtun.

Lesa meira af Opinber dagskrá fyrir Langasand


Langisandur 2007

Skráningu lýkur
fimmtudaginn 27. September í Langasandskeppnina,kl. 23:59. Hvetjum menn og konur að
taka þátt í þessu,
veðurspáinn lýtur vel út fyrir laugardaginn.
Það eru vinningar í boði fyrir alla flokka, sjö flokkar ásamt því að
allir keppendur fá verðlaunapening.
Einnig er árskort í Akrabraut 2008 í boði fyrir þá sem vinna sína flokka.
Lesa meira af Langisandur 2007

Síða 1 af 912345...Síðasta »