Starfsmenn fyrir Sólbrekku keppnina óskast

Nú fer senn að líða að fjórðu umferð Íslandsmeistaramótsins í motocrossi en hún verður haldin af VÍR í Sólbrekku n.k. laugardag, 18. ágúst.  Keppnin er haldin í samvinnu við KFC og MXsport.is.  Nú vantar okkur gott fólk til þess að starfa sem flaggarar við keppnina.  Fyrir þá sem taka að sér þetta verkefni og sinna því yfir daginn er eftirfarandi í boði:
 

  • – Inneign upp á 3.500 kr frá netversluninni MXsport.is
  • – 6 miðar í Sólbrekku braut
  • – Ljúffengur hádegismatur frá KFC á keppnisdegi

Vinsamlega hafið samband við Kristján Geir í síma 862-5679 eða sendið póst á kristjan@kasma.is


Skildu eftir svar