|
Selfossbrautin er lokuð fram á fimmtudag. Búið er að keyra mikið efni í hana og stækka 4 stökkpalla. Efnið sem sett var í hana er ennþá of blautt og þarf að fá að þorna áður en hægt er að hjóla í henni. Með áframhaldandi þurrk ætti það að vera hægt á morgun. Brautinni verður svo lokað á laugardaginn vegna innanfélagsmóts. Mana ég sem flesta til þess að kíkja á hana á morgun og prófa nýju pallana. Þetta er að verða almennileg supercross braut. Myndir og frekari upplýsingar eru á www.mxarborg.bloggar.is Miðar eru seldir í pylsuvagninum við brúarsporðinn og kosta 1000 kr. kv. Auðun Daníelsson Lesa meira af Selfossbrautin opnar á fimmtudag Brautin í Þorlákshöfn er alveg lokuð við sjáum okkur ekki fært að koma henni í keyrsluhæft stand á hverju kvöldi þannig að brautin er lokuð þar til annað verður tilkynnt. Í gær var lagður grunnur að nýjum stökkpalli og sáð í svæðin sem eru inn í brautinni, hinir pallarnir verða lagaðir og ef tími vinnst til þá eru hugmyndir að þremur til fjórum nýjum pöllum. Í dag verður grafa að fleyga klappir úr brautinni. Einnig verður breyting á einni eða tveimur beygjum til að gera aðkomu á pallana betri. Það eru vinnukvöld hjá okkur í kvöld kl ukkan 19:30 og næstu kvöld allir eru velkomnir að hjálpa til og er vel borgað í miðum í brautina, ef einhver getur komið og hjálpað til þá endilega hafa með sér dúkahníf og góða vettlinga. Kveðja Gunnar Már Þorlákshöfn Lesa meira af Þorlákshöfn
Motocross of Nations verður haldin á Budds Creek brautinni í Maryland fylki Bandaríkjanna dagana 22. og 23. september 2007. Ísland sendir í fyrsta skipti lið til þátttöku og verður spennandi að sjá hvernig því gengur.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að mæta og horfa á keppnina þá eru hér upplýsingar fyrir þá. Í stuttu máli þá mælum við með að menn kaupi sér flugmiða með Icelandair og komi sér sjálfir í bílaleigubíl að brautinni. Hægt er að fá miða inná keppnina sjálfa á netinu eða í gegnum MSÍ. Lesa meira af Ferð á MXON
Um Verslunarmannahelgina 3.-6. Ágúst að Oddsparti, Þykkvabæ Fjölbreytt leikjadagskrá fyrir börn og fullorna. Enduro kennsla og ferð fyrir börn á eigin hjólum. Tjaldstæði, salerni, veitingar, lifandi tónlist Miðaverð 3000 kr , frítt fyrir börn yngri en 10 ára (einnig dagpassar 1500 kr ) Lesa meira af Fjölskyldumót bifhjólafólks
Af tilefni þess að við vorum að opna nýja braut á Akranesi höfum við ákveðið að litlu hjólin fá frítt næstu tvær vikurnar.Fyrir hina eru miðar seldir í Olís Akranesi Bestu kveðjur Jóhann S Lesa meira af Akranes
Selfossbrautin er lokuð laugardaginn 14. júlí. Beltagrafan sem var að laga brautina bilaði og viðgerðirnar töfðust um einn dag. Viðgerðar dagur verður í staðinn sunnudaginn 15.júlí kl. 12.00. Allir sem mæta og vinna í 30 mín fá frítt í brautina. Allir sem mæta þurfa að koma með verkfæri með sér hrífu, skóflu eða járnkarl. Breytingar hafa verið gerðar á Brautinni og fullt af mold keyrt í hana. Hún á eftir að vera geðveik eftir þessa viðgerð. Frekari upplýsingar á www.mxarborg.bloggar.is Kv. Mxárborg Lesa meira af Frestun á Selfossi | |