Púkaæfingin sem á að vera í kvöld kl 19:00 frestast þangað til á morgun föstudag. Æfingin verður kl 19:00 í Álfsnesi. Minni á það að æfingarnar eru fyrir 6-12 ára og upp að 85cc-125cc 4 stroke.
Kv. Gulli
Lesa meira af Púkaæfingin frestast
Púkaæfingin sem á að vera í kvöld kl 19:00 frestast þangað til á morgun föstudag. Æfingin verður kl 19:00 í Álfsnesi. Minni á það að æfingarnar eru fyrir 6-12 ára og upp að 85cc-125cc 4 stroke. Það verður lokað áfram, og við munum auglýsa opnun síðar, það var frábær stemming í gærkvöldi á vinnukvöldinu, öll dekk tekin og sett í gám, brautin sléttuð með jarðýtu, tætt og grjót fjarlægt, barnabrautin löguð, og er unnið að undirbúningi fyrir púkahittinginn 2007. Stjórnaði íslandsmeistarinn í motocrossi 2006 þeirri vinnu. Krakkar þið getið ímyndað ykkur hvað hún verður góð !!. Einnig var rusl týnt endana á milli. Það mættu 20 menn konur og börn og þökkum við kærlega fyrir frábæra hjálp. Motocrossbrautin í Ólafsvík lokar kl 20 á laugardaginn, og verður lokuð fram að keppni. Stelpuenduroferð Nítró verður farin laugardaginn 23. júní nk. Þessi ferð er fyrir allar stelpur, bæði byrjendur og lengra komnar, Ath. að hjól eins og pittbike sem eru á litlum dekkjum henta ekki í þessa ferð. Mæting er á N1 Ártúnshöfða kl. 9:30 og lagt af stað stundvíslega kl. 10:00. Hjólað verður í nágrenni Bolöldu. Þessi ferð er í Í kvöld ætlum við að laga brautina okkar og gera góða braut betri. Okkur vantar alltaf aðstoð við ýmislegt, týna grjót, merkja braut, laga umhverfið. Minnum á að motocrossbrautin á Álfsnesi er eign klúbbfélaga og hagnast félagar mest á að vinna sjálfir að þeim úrbótum sem betur mega fara. Hingað til hafa 2 mætt til að aðstoða, fyrir utan frænku eins í Álfsnesnefndinni, sem er 80 ára og er ekki í klúbbnum, en hún gaf okkur kaffi blessuð. Smá fréttir af Red Bull Romaniacs. Á þriðja degi fannst keppendum þeir vera staddir í miðri Indiana Jones mynd og gersamelaga trúðu ekki eigin augum: Ótrúlega brattar brekkur, 60° niður, og grjótkaflar eins og verst gerist í Erzberg. Sumsé allt sem enduroökumanni dreymir um – en samt var enginn leiður yfir því að koma í mark | ||