Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


VÍK uppsögn

Reykjavík 3. júní 2007.

    Eins og þegar er farið að kvissast út á meðal meðlima í Vélhjólaíþróttaklúbbnum þá hefur mér verið sagt upp störfum fyrir Vélhjólaíþróttaklúbbinn.
   Mér var afhent uppsagnarbréf af formanni VÍK 31. maí síðastliðinn og áttum við Hrafnkell formaður ágætis spjall við það tækifæri. Í framhaldi af því spjalli ákvað ég að hætta sem fyrst og helst daginn eftir.  Eftir mikinn þrýsting frá Kela geri ég það fyrir hann einann að vera þarna á Bolaöldusvæðinu í eina viku til að stjórna vinnuhópi frá Landsvirkjun svo ekki tapist þeir tveit styrkir sem VÍK hefur fengið hjá Pokasjóði og Landbótasjóði.  Vinnuhópur þessi er svipaður og

Lesa meira af VÍK uppsögn


Æfing á sunnudag

Ráðgert er að halda æfingu í Bolöldu á sunnudag fyrir alla áhugasama motocross hjólamenn. Æfingin verður framkvæmd þannig að skráning hefst kl: 15:00 en kl: 16:00 verður ræst formleg æfing á supercross formi. Flokkaskipting veltur á þátttöku. Keyrðar verða tvær tímatökur og komast 12 fyrstu menn úr hvorri um sig í úrslit. Því næst verður þriðja og síðasta tímataka fyrir restina þar sem 6 efstu menn komast í úrslit. Að lokum verða keyrð úrslit með 30 þátttakendum í tveimur 15 mín. mótoum. Þátttökugjald er kr. 2.000,- og er brautarpassi innifalinn.
Brautarnefnd
Lesa meira af Æfing á sunnudag


Opnun á Bolaöldu

Unnið verður við viðhald og lagfæringar á Bolöldubrautinni í kvöld. Brautin verður opin á meðan en búast má við einhverjum truflunum vegna þessa. Á morgun laugardag verður brautin opin frá 10:00 til 18:00. Eftir kl: 18: verður ráðist í frekari viðhald og lagfæringar. Góða skemmtun.
Brautarnefnd
Lesa meira af Opnun á Bolaöldu


Enduroferð stelpna frestast

Hin árlega stelpuenduroferð sem átti að vera 2. júní verður því miður frestað vegna bikarmóts á Akureyri. Við stefnum á 23. júní í staðinn.  Endilega takið daginn frá.

Kv. Tedda Nítró

Lesa meira af Enduroferð stelpna frestast

Síða 15 af 15« Fyrsta...1112131415