2. umferð íslandsmótsins í motocross

Laugardaginn 30. júní fer fram 2. umferð Íslandsmótsins í motocross í Ólafsvík.  Keppni í meistaraflokki hefst kl. 14:00,  en unglinga- og kvennaflokkar byrja kl. 10:00.
Brautin í Ólafsvík er um 3km fyrir vestan bæinn og sést vel frá þjóðveginum.  Mætið á svæðið og fylgist með spennandi keppni í öllum flokkum.


Keppnisstjóri: Rúnar Már Jóhannsson
Brautarstjóri: Viggó Viggósson
Yfirflaggari: Kristján Geir Mathiesen
Tímataka: Einar Smárason

Dagskrá keppninnar verður hin staðlaða MX dagskrá MSÍ, sem dreift var á Álfsnesi ( Sjá dagskrá ‘hér’  ). Keppendur fara í tímatöku samkvæmt dagskrá.  Þegar henni er lokið er komin uppröðun á ráslínu sem gildir allan daginn.  Þegar flokkur sem keppandi er í, er kallaður upp fer hann að hliðarlínu og bíður þar eftir að vera hleypt inn að rásmarki.  Keppanda er hleypt inn og hliði lokað.  Verði keppandi of seinn er hann ekki með!
Þegar keppanda er hleypt inn að rásmarki skal hann fara beint að sínum rásstað og vera tilbúinn strax.  það verður ekkert nafna- eða númerakall.  Ef keppandi er ekki tilbúinn þegar teygjan smellur ber hann einn ábyrgð á því.

Það hefur borið á því að keppendur hafa ekki farið eftir þeim reglum sem gilda um motocross.  Hér fyrir neðan eru nokkrir punktar.

– Illa merkt hjól, úrdráttur úr grein 7. KEPPNISNÚMER – Fjöldi og staðsetning:
Hjól skal hafa númeraspjöld á a.m.k. þremur stöðum. 2 sem liggja langs með hjólinu á sitt hvorri hliðinni fyrir aftan fótstigin. Einnig að númer sé sett á plötu sem snýr fram á hjólinu. Keppandi sem ber keppnisnúmer a.m.k. 15cm stafi á baki er undanþeginn númerum á hlið hjóls.  Keppandi sem ekki gætir þess að númer sjáist greinilega getur átt á hættu að falla úr keppni eða verða ekki talinn með.

– Fjöldi hringja í æfingu/tímatöku, úrdráttur úr grein 11. FRAMKVÆMD KEPPNI:
Til þess að fá að hefja keppni verður ökumaður að hafa ekið brautina minnst 3 hringi fyrir keppni.

Aldur keppanda: Lágmarks aldur keppanda í Íslandsmóti er frá 12 ára eða eldri.

Skildu eftir svar