Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Bolaalda lokuð

Motocrossbrautirnar í Bolaöldu loka kl 18 í dag.

Lesa meira af Bolaalda lokuð


Hvert á að fara ?

Hvernig væri, þar sem allir eru að fara út úr bænum um helgina, að hjólafólk myndi setja stefnuna á Snæfellsnesið. Við minnum á 2. umferð Íslandsmótsins í motocross  í Ólafsvík þar sem baráttan er í algleymingi og um að gera fyrir áhugasama að fjölmenna á staðinn og taka þátt í stemningunni. Munum að fara varlega í umferðinni og vera sportinu til sóma í Ólafsvík…. og alls staðar.
Góða ferð ;-) )

Lesa meira af Hvert á að fara ?


Betur má ef duga skal – flaggarar óskast

Til þess að hægt sé að halda motocross keppnina þurfum við flaggara. Það er bara ekkert öðruvísi. Og þar sem vantar ennþá nokkra flaggara þá biðjum við þá sem eru að fara vestur til að horfa á eða hjálpa til í pittinum hvort þeir geti flaggað hluta úr degi. Endilega athugið í kringum ykkur hvort þið getið ekki fengið einhvern til þess að hjálpa okkur að gera keppnina eins örugga og hægt er. Hafið samband við Kristján Geir í 862-5679 eða senda tölvupóst á kristjan@kasma.is með nafni og gsm símanúmeri.
Með bestu þökkum,
Stjórn torfæruhjóladeildar AÍH.

Lesa meira af Betur má ef duga skal – flaggarar óskast


2. umferð íslandsmótsins í motocross

Laugardaginn 30. júní fer fram 2. umferð Íslandsmótsins í motocross í Ólafsvík.  Keppni í meistaraflokki hefst kl. 14:00,  en unglinga- og kvennaflokkar byrja kl. 10:00.
Brautin í Ólafsvík er um 3km fyrir vestan bæinn og sést vel frá þjóðveginum.  Mætið á svæðið og fylgist með spennandi keppni í öllum flokkum.

Lesa meira af 2. umferð íslandsmótsins í motocross


111 keppendur skráðir í 2. umferð Íslandsmótsins

Eftir lokun skráningar þá eru 111 keppendur skráðir í 2. umferð Íslandsmótsins. Hér fyrir neðan er listi yfir skráða keppendur.  Ef einhverjir sem hafa skráð sig eru ekki á listnanum þá geta þeir sent póst á postur@msisport.is . Þar sem keppendur í MX unglingaflokki eru færri en 38 verður hópnum ekki skipt eftir tímatökur.

Lesa meira af 111 keppendur skráðir í 2. umferð Íslandsmótsins


Flaggarar fyrir Ólafsvíkurkeppnina

Styttist óðfluga í að 2. umferð í Íslandsmeistaramótinu í motocrossi sem verður haldin um helgina í Ólafsvík.  Okkur vantar mannskap til að hjálpa til við að flagga.  Það er mjög mikilvægt að hafa öryggisatriðin í lagi og í því samhengi er hlutverk flaggara mjög mikilvægt.  Hafið samband við Kristján Geir í 862-5679 eða senda tölvupóst á kristjan@kasma.is með nafni og gsm símanúmeri.
 
Stjórn torfæruhjóladeildar AÍH.

Lesa meira af Flaggarar fyrir Ólafsvíkurkeppnina

Síða 1 af 1512345...Síðasta »