Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Veðrið um helgina

Ef þessi veðurspá gengur eftir má ætla að veðurguðinn sé á endurohjóli. Í öll skiptin sem keppnin á Klaustri hefur verið haldin hefur verið gott veður, og það stefnir í það enn einu sinni ….. 7…..9……13.
Hér er veðurspáin eins og hún lítur út í dag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt um helgina og stöku él eða skúrir austanlands, en annars yfirleitt léttskýjað. Hiti 0 til 7 stig.
Þetta merkir bjart, þurrt og hægur vindur ;-)

Lesa meira af Veðrið um helgina


Vanir ýtumenn óskast

VÍK óskar eftir að fá vana ýtumenn til að hjálpa til á Bolöldu í sumar. Nú þegar eru nokkrir kappar félaginu til aðstoðar en margar hendur vinna létt verk. Um er að ræða örfá skipti á mann í sjálfboðavinnu og notast er við nýju ýtuna sem VÍK keypti um daginn.

Lesa meira af Vanir ýtumenn óskast


518 Keppendur á Klaustri

Nú þegar skráningu er lokið í 6. Trans Atlantic Off Road Challenge er ljóst að þátttökumet verður slegið í akstursíþróttakeppni á Íslandi. 518 keppendur eru skráðir til leiks.

  • 406 í tvímenningsflokki
  •   43 í einstaklingsflokki
  •   27 í unglinga 85cc
  •   12 í unglinga 125cc
  •   14 í kvenna 85cc
  •   16 í kvenna 125cc

Keppnishaldarar óska keppendum góðrar skemmtunar og góðs gengis.

Lesa meira af 518 Keppendur á Klaustri


Breytingar á Klaustri

Hætt verður að taka við beiðnum um breytingar á viðbætur á keppendalista á Klaustri í kvöld, 22.maí klukkan 23.59
vefstjori@motocross.is

Lesa meira af Breytingar á Klaustri


Bann frá svæðum vs. “keppnisbann”

Michael B. David voru nýverið bönnuð afnot af svæðum VÍK til og með 18. júní m.a. fyrir að vera miðalaus í brautinni nýverið. Bannið tekur til beggja svæða. Það hefur hins vegar aldrei verið fjallað um keppnisbann af þessu tilefni.
Lesa meira af Bann frá svæðum vs. “keppnisbann”


Tvígengishjólin í MX ekki dauð. 144cc 2T ekki framtíðin.

Þeir sem fylgjast með umræðu um vélarstærðir í Motocross vita að breytinga er að vænta í þeim efnum. Nú nýlega hittust FIM og AMA til þess að ræða þessi mál. Það er öllum ljóst að sú þróun sem er í hönnun á 4T vélum (fjórgengis) hefur gert það að verkum að 250 2T (tvígengis) og 450 4T vélar eru ekki lengur sambærilegar. Orkan í 450 4T er orðin það mikil að 250 2T á ekki möguleika á að keppa við þær lengur. Einnig fylgir því mikill rekstrarkostnaður að reka 4T hjólin og stendur vilji manna til þess að minnka þann kostnað. Einnig verður mönnum tíðrætt um það hvað 4T hjólin slíta brautunum mikið meira en 2T hjólin. Tillaga beggja aðila í dag er sú að halda sérstaklega utan um keppni á 85cc og 125cc 2T hjólum og útiloka
Lesa meira af Tvígengishjólin í MX ekki dauð. 144cc 2T ekki framtíðin.

Síða 5 af 15« Fyrsta...34567...Síðasta »