Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Fjölskyldudagur í Bolaöldu á skírdag

Um síðustu páska var haldin páskaskemmtikeppni sem þótti takast með ágætum fyrir bæði áhorfendur og keppendur (fyrir utan Jóakef). Margir hafa haft samband við mig til að kanna hvort þetta verði ekki árviss atburður. Í mörgum tilfellum hef ég svarað því játandi, en nú verð ég að játa mig sigraðan. 
Lesa meira af Fjölskyldudagur í Bolaöldu á skírdag


WORCS fjórða umferð.

Ryan Huges vann fjórðu umferð WORCS um helgina, og er það þriðji sigur hanns í röð. Hann hefur nú 19 stiga forystu á Kurt Caselli. Caselli var fyrstur eftir fyrsta hring, en Huges seig svo fram úr og hélt forystunni eftir það. Caselli kom í mark 12 sek á eftir Huges í annað sætið og Nathan Woods náði þriðja eftir að hafa misst úr síðustu keppni vegna brotinnar handar.
Þegar Huges var í góðum gír að byggja upp forystu átti Caselli í vandræðum og féll aftur í fimmta sæti. "  Mér leið ekki vel fyrstu 45 mínúturnar, ég var ekki að ná rétta taktinum og pumpaðist aðeins upp " sagði Caselli. En þegar armpumpið hvarf og takturinn kom náði hann að auka hraðann til muna og náði öllum aftur nema Huges sem eins og áður sagði, sigraði.
Lesa meira af WORCS fjórða umferð.


MX GP 2007 byrjað

Í gær var fyrsta umferð heimsmeistarakeppninar í Motocross haldin í Valkanswaard í Hollandi. Joshua Coppins Yamaha vann fyrsta MX1 GP tímabilsins, og setti Jonathan Barragan KTM og Steve Rmon Suzuki fyrir aftan sig, en það var langt frá því að vera auðvelt.  Jonathan Barragan sigraði seinna mótoið, varð rétt á undan Coppins og sýndu þessir ökumenn snilldartakta. Þetta lofar góðu fyrir framhaldið, og má eiga von á mikilli baráttu.
Í MX2 var mikil barátta og mikið að gerast milli keppenda. Helsta var að Pourcel lenti ofaná Tommy Searl eftir eitt stökkið. En það var Cairoli sem sigraði og Tyla Rattray varð í öðru.

Lesa meira af MX GP 2007 byrjað


Umræðan

Vegna umræðna um opnunarparty fmx.is vill Vélhjólaíþróttafélagið VÍK taka fram að þar kom það hvergi nærri. VÍK er íþróttafélag undir merkjum ÍSÍ og Motocross.is málgagn þess. VÍK gerir að sjálfsögðu konum og körlum, stelpum og strákum jafnt undir höfði sem iðkendum í sportinu og lýsir furðu sinni á framsetningu á hjólakynningu með þessum hætti.
Innan VÍK er unnið markvisst að því að byggja upp góða hjólamenningu þar sem fólk er meðal annars vakið til vitundar um umhverfismál, almennar umferðareglur og fl.

Lesa meira af Umræðan

Síða 9 af 9« Fyrsta...56789