ATH. ATH – Stóra MX-brautin í Bolaöldu lokuð til kl. 15

Á morgun 1. maí verður stóra motocrossbrautin í Bolöldu lokuð til kl. 15 á meðan unnið verður með jarðýtunni í henni. Í dag er búið að slétta brautina og rífa upp hörðustu kaflana. Á morgun verð stökkpallarnir lagaðir og stækkaðir. Brautin verður opnuð kl. 15 stundvíslega og ætti að verða í mjög góðu standi seinnipartinn.

Byrjenda- og 85 brautirnar verða opnar eins og vanalega á morgun. Sandhringurinn í Jósepsdal er að verða nokkuð góður og nú er búið að opna endurohringinn á flatanum sunnan við bílastæðið þannig að hægt verður að hjóla svæðinu þrátt fyrir lokunina.

Í fyrramálið verður líka unnið í húsinu og í kringum það. Ef einhverjir vilja hjálpa við smíðar og málningarvinnu fram að brautaropnun þá væri öll aðstoð vel þegin.

Brautar- og húsnefnd Bolaöldu.

Skildu eftir svar