ATH. ATH – Stóra MX-brautin í Bolaöldu lokuð til kl. 15
| 30. apríl, 2007 | 21:12Á morgun 1. maí verður stóra motocrossbrautin í Bolöldu lokuð til kl. 15 á meðan unnið verður með jarðýtunni í henni. Í dag er búið að slétta brautina og rífa upp hörðustu kaflana. Á morgun verð stökkpallarnir lagaðir og stækkaðir. Brautin verður opnuð kl. 15 stundvíslega og ætti að verða í mjög góðu standi seinnipartinn.
AÍH vill koma á framfæri að það er akstursbann á keppnissvæðinu á Hellu fram að keppni. Eitthvað hefur borið á því að menn hafa verið að æfa sig þar upp á síðkastið og við getum átt það á hættu að missa svæðið ef bannið er ekki virt. Keppnin er haldin á einkalandi og er háð leyfi landeigenda. Ef upp kemst að keppendur eru að aka þarna þá eiga þeir á hættu að vera kærðir til lögregluyfirvalda og verða vísað úr keppni. Við viljum ekki missa þetta svæði og þurfum á því að halda að menn virði bannið. Með hjólakveðju Stjórn AÍH
Nýlegar athugasemdir
ATH VÍFA brautin er að sjálfsö...
og ótrúlegt hvað ég get ekki...
ótrúlegt að eitthverji r hvað...
Glæsilegt. Til hamingju með samning...
Við ættlum að taka þetta bara skref...
Glæsilegt. Til lukku með þetta. Nú er...
Flottust! Til hamingju VÍR.
Til hamingju með þetta. Á að setja...