Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Álfsnes

Núna hef ég lokið vinnu við að ræsa fram polla og tjarnir á motocrossbrautinni á Álfsnesi. Ég vil byrja á að þakka Heklu fyrir þann velvilja og traust á að lána VÍK beltagröfuna í þessa fjóra daga sem verkið tók og einnig þakka sérstaklega Óla sem gróf tvö kvöld og mátti vel sjá hver munurinn á vönduðum vinnubrögðum Óla og fúskinu hjá mér þegar ég kom á morgnana og sá hvað Óli var búinn að gera mikið. Við byrjuðum á að opna út úr öllum helstu pollum og tjörnum sem hafa verið til vandræða vegna drullu síðastliðið ár.
Lesa meira af Álfsnes


Landsmót bifhjólafólks á Íslandi

Næsta sumar, helgina 6-8 júlí verður landsmót bifhjólafólks haldið að Skúlagarði. Þetta verður 22. mótið sem haldið verður í óslitinni röð. Mótið hefur verið haldið víðsvegar um landið og höfum við ákveðið þá nýbreytni þetta árið að skýra mótið “Landsmót bifhjólafólks á Íslandi” Þetta er gert til að fá fleiri og fjölbreyttari hóp á landsmót. Mótið verður áfram haldið af Sniglum og í boði samtakana. Staðsetning þetta árið er valin að hluta til að fá cross og enduro fólk á svæðið, örstutt er í þeystarreykjasvæðið og auðvitað erum við öll í sama sporti. Markmiðið er að allir sem stunda hjólamennsku finnist þeir velkomnir á þetta stærsta mót ársins. Nú þegar
Lesa meira af Landsmót bifhjólafólks á Íslandi


Munið félagsgjöldin

Nú er rétti tíminn til að greiða félagsgjöldin. Félagið undirbýr sig fyrir sumarið og heldur uppbyggingin áfram. Svæðin á Bolöldu og Álfsnesi fara að koma undan vetri, og munu aurarnir sem inn koma af félagsgjöldunum fara í áframhaldandi uppbyggingu á aðstöðunni.

Smelltu hér ef þú ert í félaginu

Smelltu hér ef þú vilt nýskrá þig í VÍK

Félagsgjaldið er 4000 krónur á ári og hægt er að greiða með kreditkorti. Sérstök kjör eru fyrir fjölskyldur (sem hafa sama lögheimili) en þeim er bent að hafa samband við vik@motocross.is

Svo er hægt að prenta út félagsskírteini eftir greiðslu.

Lesa meira af Munið félagsgjöldin


Supercross í Nitró

Supercrossið verður á sínum stað í Nítró í kvöld kl. 21:00. Fylgst verður með keppninni sem fram fór á Georgia Dome. Sælgætisgerðin Freyja sér um að enginn fari án þess að vera búinn að "Rísa sig upp". Sjáumst í kvöld.
Lesa meira af Supercross í Nitró


Aðalfundur AÍH dagskrá

Aðalfundur AÍH verður haldinn miðvikudaginn 14.mars kl. 20:30 í Álfafelli í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Álfafell er á 2. hæð. Allir velkomnir og félagsmenn eru sérstaklega hvattir til að mæta og taka þátt. Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:
Lesa meira af Aðalfundur AÍH dagskrá


Framkvæmdir í Álfsnesi

Undanfarna daga hafa Hjörtur og Óli unnið af krafti í brautinni á Álfsnesi við að dýpka skurði og losa vatn af brautarsvæðinu. Eins og sést á meðfylgjandi myndum eru þeir búnir grafa djúpa skurði á nokkrum stöðum meðfram brautinni og nýta efnið til að hækka brautina á móti.
Lesa meira af Framkvæmdir í Álfsnesi

Síða 7 af 7« Fyrsta...34567