Landsmót bifhjólafólks á Íslandi

Næsta sumar, helgina 6-8 júlí verður landsmót bifhjólafólks haldið að Skúlagarði. Þetta verður 22. mótið sem haldið verður í óslitinni röð. Mótið hefur verið haldið víðsvegar um landið og höfum við ákveðið þá nýbreytni þetta árið að skýra mótið “Landsmót bifhjólafólks á Íslandi” Þetta er gert til að fá fleiri og fjölbreyttari hóp á landsmót. Mótið verður áfram haldið af Sniglum og í boði samtakana. Staðsetning þetta árið er valin að hluta til að fá cross og enduro fólk á svæðið, örstutt er í þeystarreykjasvæðið og auðvitað erum við öll í sama sporti. Markmiðið er að allir sem stunda hjólamennsku finnist þeir velkomnir á þetta stærsta mót ársins. Nú þegar

hef ég fengið fregnir af nokkrum sem eru búnir að skipuleggja ferð yfir hálendið að sunnan til að mæta á mótið. Meðal þess sem boðið er upp á er leikjadagskrá, böll, myndasýningar og margt fleira, einnig er súpa á föstudagskvöld og kvöldmatur á Laugardagskvöld. Leikjadagskráinn verður með nýju sniði og verða þar til dæmis nýir leikir fyrir cross og endurohjól. Allar hugmyndir, tillögur og spurningar eru velkomnar.

Skildu eftir svar