Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Spjallkorkurinn

Ég hef enga þolinmæði gagnvart svona orðalagi og munnsöfnuði eins og var á korknum í dag, og hefur færslunum verið eytt.  Áttum okkur á því að við erum íþróttafélag sem er að reyna að vinna að því að auka virðingu fyrir sportinu. Svona eitthvað er ekki að hjálpa til í þeirri baráttu, og vona ég að menn sýni lágmarks þroska ef þeir hafa þörf fyrir að skrifa á korkinn. Spjallkorkurinn er fínn staður til að ræða hluti og koma með ábendingar ef hann er rétt notaður og ég hvet fleiri til að nota hann. Þeir sem áttu hlut að máli eru á síðasta séns með að verða blokkeraðir.
Vefstjóri.
Lesa meira af Spjallkorkurinn


Góð hugmynd !

Járnsmíðin liggur misjafnlega fyrir fólki, og sumir eru lagnari með timbrið. Þessi er klárlega meira fyrir spítuverkið og ekki vantar hugmyndaflugið. Þatta kallar maður að bjarga sér :-)

Lesa meira af Góð hugmynd !


Drullublaut jörð

Hjólamenn og -konur. Undanfarið hefur borið á verulegum leysingum víða um land, með tilheyrandi aurbleytu og leiðindum.  Nú styttist í páskahelgina og örugglega margir sem hafa hug á því að skeppa í túr eða tvo á meðan á fríinu stendur.  Umhverfisnefndin vill beina þeim tilmælum til alls vélhjólafólks í landinu að sýna nærgætni næstu daga og vikur og hlífa jörðinni meðan hún er svona blaut. Þeir/þær sem vilja hjóla eru bent á að fylgjast með opnun brauta, auk þess sem vel má hjóla eftir malarbornum línuvegum, slóðum sem liggja á hrauni og uppbyggðum malarvegum.
Með páska kveðju,  umhverfisnefnd VÍK.

Lesa meira af Drullublaut jörð


Þakkir frá MXsport.is

Sæl öll. Við viljum þakka fyrir frábærar viðtökur sem MXsport.is hefur fengið á þeirri viku sem liðin er síðan við opnuðum. Við viljum líka minna menn og konur á einnnota Fast3Filter loftsíurnar sem eru á kynningartilboði á 1 kr. Þið getið smellt hér til að fá frekari upplýsingar. Frábær leið til þess að næla sér í auka loftsíu og prófa No-Toil olíuna í leiðinni.
Óskum ykkur góðrar helgar, starfsfólk MXsport.is
Lesa meira af Þakkir frá MXsport.is


Kerru stolið

Hjólakerru var stolið s.l. nótt þar sem hún stóð á bílaplaninu fyrir aftan

Sundhöll Reykjavíkur. Þetta er rauð þriggja hjólakerra með álklæðningu og
brúnum kassa framan á. (Sjá myndir) Kerran var læst með hengilás svo
þjófarnir hafa þurft að hafa aðeins fyrir þessu. Ef einhverjir geta gefið
upplýsingar um kerruna vinsamlega hringið í síma 899 4313 eða í Lögregluna.

Kv. Maggi

Lesa meira af Kerru stolið


Bolaalda

Svona leit Bolaldan út í fyrradag. Kannski ekki mikið hjólafæri þar eins og staðan er ;-)
Lesa meira af Bolaalda

Síða 1 af 712345...Síðasta »