Ekkert Klaustur !

Bölvanlegt að þurfa að tilkynna þetta. En því miður verður ekki keppt hérna á Klaustri í ár.
Menn spyrja eflaust um ástæðuna og skýringin er sú að ég hef bara ekkert land til að vinna með og það er víst algerlega ómissandi hluti í keppnishaldi sem þessu.

Ég þakka öllum þeim sem hafa komið að þessari keppni í þessi fimm ár sem ég hef staðið fyrir henni, jafnt starfsmönnum sem keppendum. Vona að þetta hafi vakið augu okkar hjólamanna að allt er hægt.
Kveðja Kjartan

Viðbót frá VÍK sbr. spjallkorkinn:

Sælir, það sem Kjartan á við er það að landeigandinn á Efri-Vík þar sem keppnin hefur verið haldin hefur ekki áhuga á að keppnin verði haldin á þeirra landi. Nýverið var reist svokallað heilsuhótel á Efri-Vík og þar telja menn ekki samræmast að vera með mótorhjólakeppni á sama stað. Það er því staðfest að keppnin verður ekki þar – við erum hins vegar að skoða aðra staði sem gætu komið til greina fyrir keppnina. Kjartan hefur ekki trú á að aðrir landeigendur í nágrenni Klausturs vilji taka keppnina að sér þó það sé kannski ekki fullreynt. Nokkrir aðrir staðir koma til greina og verður farið í þá skoðun af krafti núna.

Við höfum rætt það við Kjartan að VÍK taki meiri ábyrgð á keppnishaldinu en áður s.s. skráningu og kynningarmál o.fl. og það er óbreytt. Það er því alls ekki útséð með "Klausturskeppnina" 27. maí hvort sem hún verði á Klaustri eða ekki.

Kveðja,

Hrafnkell Sigtryggsson
formaður VÍK

Skildu eftir svar