Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Bernhard ehf kostar Supercross á Sýn í vetur!

Bernhard ehf hefur nú samið við sjónvarpsstöðina sýn um kostun á Supercross þáttunum sem sýndir eru á föstudögum. Þættirnir eru frumsýndir á föstudagskvöldum og endursýndir á fimmtudagskvöldum í vetur. Þetta eru gríðarlega skemmtilegir þættir sem ekkert áhugafólk um motocross ætti að láta fram hjá sér fara.
Lesa meira af Bernhard ehf kostar Supercross á Sýn í vetur!


Nitró stendur fyrir æfingum í febrúar og mars

Við hjá Nítró erum að fara af stað með úthalds, styrktar og sprengjuæfingar í febrúar og mars. Æfingarnar verða þriðjudaga og fimmtudaga kl. 19:00, hittingur fyrir framan Laugardalslaug. Æfingarnar eru opnar fyrir alla en auðvitað hvetjum við alla Kawasaki menn/konur til að mæta.
Fyrsta æfingin verður næstkomandi fimmtudag kl. 19:00.
Einnig verðum við með smá hjólaæfingar næstkomandi laugardag. Farið verður í grunnæfingar, s.s. beygjur o.fl. Æfingin verður haldin í Þykkvabæ og byrjar hún á slaginu 12:00.
Lesa meira af Nitró stendur fyrir æfingum í febrúar og mars


Bjarni Harðarson blogg

Rétt að benda á bloggsíðuna hjá Bjarna Harðarsyni blaðamanni, bóksala og frambjóðanda, og athyglisverða umræðu þar um torfæruhjól. Annarsvegar Hjólað í vatni og hinns vegar Veiðileyfi á mig, enda af nógu að taka!


Minnum á viðhaldsnámskeið fyrir stelpur í Nítró

Sælar stelpur mínar
Nú er komið að fyrsta námskeiði ársins. Nítró býður öllum hjólastelpum á námskeið í viðhaldi á hjólum. Námskeiðið verður haldið í versluninni Nítró að Bíldshöfða 9, þriðjudaginn 30. janúar kl. 20.00. Nú er bara að mæta, til að læra eitthvað um hjólið eða bara til hitta allar hinar hjólastelpurnar. Kostar ekkert!!!


Ástand brauta á korknum – nýtt

Búið er að opna sér forum á korknum sem heitir Ástand brauta. Þar geta menn borið saman bækur sínar hvernig staðan er á brautunum. Einnig gott að hafa þessa umræðu á einum stað, þannig að menn þurfi ekki að vera að leita að þessu um allan kork.
Lesa meira af Ástand brauta á korknum – nýtt


Fyrstu myndir af 2008 módelinu af KTM RFS seríunni

Fyrstu myndir af nýju KTM fjórgengis endurohjóli sem á að leysa af hólmi 450
og 525 EXC, RFS hjólin eru farnar að birtast á netinu. Það er staðfest af
hálfu KTM að þessi hjól eru væntanleg. Þetta er alveg nýr mótor sem á
ekkert sameiginlegt með nýja 450 SX mótornum né heldur gamla
fjórgengismótornum. Hann er með einum ofanáliggjandi knastási og
startsveif, ólíkt 450 SX sem er með twin cam og er eingöngu með rafstarti.
Ýmsar tilgátur hafa verið um kúbikfjölda en líklegt þykir þó að það verði
raunveruleg 520 – 530 cc í stærra hjólinu (ekki gabb 525 eins og í gamla sem

Lesa meira af Fyrstu myndir af 2008 módelinu af KTM RFS seríunni

Síða 1 af 812345...Síðasta »