Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Bolaaldan opin um helgina

Hjörtur heflaði stóru brautina í Bolaöldu í dag þannig að hún er eins góð og hún getur orðið á þessum tíma. Byrjendabrautirnar verða lagaðar í fyrramálið og ef tími vinnst til ætlar Hjörtur að hefla sandbrautirnar uppi í Jósepsdal. Þó rignt hafi gríðarlega undanfarna daga hefur svæðið jafnað sig ótrúlega fljótt amk. þar sem ekki er mikil mold í jarðveginum. Húsið og salernisaðstaðan verður opin á meðan bjart er. Við minnum alla á að kaupa miða í Litlu kaffistofunni.
Lesa meira af Bolaaldan opin um helgina


ANNAR mótorhjólamaðurinn í röð var sýknaður

Af mbl: ANNAR mótorhjólamaðurinn í röð var sýknaður af ákæru um utanvegaakstur í gær þegar héraðsdómur dæmdi í máli hans vegna aksturs í hlíðum Dyrfjalla í Ölfusafrétti. Maðurinn var stöðvaður í þyrlueftirliti í byrjun júní og neitaði sök í málinu. Hann viðurkenndi að hafa ekið í umrætt sinn á vegslóða og hélt því fram að slóðinn væri gamall og notaður af bifreiðum, vinnuvélum, fjórhjólum og torfærutækjum. Ákært var fyrir utanvegaakstur sem er brot á náttúruverndarlögum en dómurinn tiltók að engin skilgreining væri í lögunum á hugtakinu "utan vega" eða "vegur". Í greinargerðinni með lagafrumvarpinu væri vísað til 2. gr. umferðarlaga en þar væri vegur skilgreindur sem vegur, gata, götuslóði, stígur, húsasund, brú, torg, bifreiðastæði eða þess

Lesa meira af ANNAR mótorhjólamaðurinn í röð var sýknaður


*Sólbrekkubraut.*

Opnunartími á Sólbrekkubraut í vetur verður : Laugardaga og sunnudaga kl 12 – 17.
Af gefnu tilefni viljum við upplýsa að Sólbrekkubraut verður opin áfram. Ekki er búið að ákveða hvenær breyting verður á brautinni.
Áður en framkvæmdir við akstursíþróttasvæðið ná inn á Sólbrekkubraut verður búið að koma upp nýrri braut þannig að við eigum ekki að verða brautarlaus.
*ATHUGIÐ! STRANGLEGA ER BANNAÐ að keyra utan brautasvæðis það á einnig við um SÓLBREKKUSKÓG og FLUGMÓDELSVÆÐIÐ !*
*Virðum útivist og tómstundir annarra ef við viljum áskapa okkur virðingu.*
Lesa meira af *Sólbrekkubraut.*


Sýknaður af ákæru um utanvegaakstur

Af mbl.is:  Rúmlega fertugur karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur til að greiða tíu þúsund krónur í sekt fyrir að hafa laugardaginn 3. júní 2006, ekið torfærubifhjóli án lögboðins skráningarmerkis í suðurátt eftir ómerktum slóða í vesturhlíð Hengils á Ölfusafrétti, sveitarfélaginu Ölfusi.
Í skýrslu lögreglu kemur fram að lögreglan hafi 3. júní s.l., í samvinnu við Landhelgisgæslu Íslands, farið í eftirlitsflug með utanvegaakstri í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Áhersla hafi verið lögð á að kanna viðkvæm gróðursvæði eins og Hellisheiði, Hengil og hálendið ofan Árnessýslu. Til eftirlitsins hafi verið
Lesa meira af Sýknaður af ákæru um utanvegaakstur

Síða 6 af 6« Fyrsta...23456