Smávegis til umhugsunar vegna tíðra hjólaslysa á Jamaica
Við hjá bernhard ehf / Honda viljum óska Heiðari Grétarssyni innilega til hamingju með íslandsmeistaratitilinn í 85cc flokki. Hann er vel að sigrinum kominn og þykir okkur það varpa skugga á gleðina að þörf hafi verið á að fara þessa leið til að krýna réttmætan sigurvegara. Það er okkar ósk að iðkendur íþróttarinnar tileinki sér heiðarlega og drengilega framkomu og séu sportinu til sóma hvort sem er í leik eða keppni. Tóti ýtukall þakkar hjálpina við að finna bílinn sinn, sem var stolið um daginn, því það var hjólamaður sem fann bílinn. Nú þegar áramótin nálgast er rétt fyrir menn að gera upp gamlar syndir. Borga félagsgjöldin í VÍK. Félagatalið hefur reyndar verið bilað en nú á allt að vera nýuppgert og fínt. Smellið hér fyrir Félagakerfið og greiðslu á félagsgjöldumVerðlaunaafhending 85cc flokks vegna úrslita í Sólbrekku þann 19. ágúst s.l. fór fram miðvikudaginn 22. nóv. í Íþróttahúsinu í Keflavík STOFNDAGUR Mótorhjóla-og Snjósleðasambands Íslands (MSÍ), er í dag, 24. nóvember. Með stofnun sambandsins er brugðist við þörf til að koma íþróttagreininni á jafnréttisgrundvöll gagnvart öðrum íþróttum. Jafnframt veitist íslenskum keppendum í fyrsta sinn tækifæri til að keppa fyrir sitt heimaland. MSÍ hefur þegar verið samþykkt af Alþjóða mótorhjóla- og vélsleðasambandinu (FIM). | ||