Reglur fyrir Langasandskeppnina

Skoðið reglurnar vel fyrir Langasandskeppnina á laugardaginn, en þær eru hér fyrir neðan !!!

REGLUR FYRIR LANGASANDSKEPPNINA

  1. Hjól verða verða skráð og tryggð. (Mjög áríðandi og verður fylgt eftir þar sem keppnin er innanbæjar)

  1. Keppnisgjöld verða vera greidd fyrir keppnisdag ( koma með greiðslustaðfestingu)

  1. Keppendur fá afhentan einn frímiða í Hvalfjarðargöngin við skoðun á hjólinu

  1. Öll umferð annara en keppnistækja og starfsmanna er óheimil á sandinum. ( Pitthjól, krakkahjól, trialshjól = BANNAÐ!) Lögreglan verður á svæðinu.

  1. Prjónkeppni, keppendur ráða hvort tekið er af stað úr kyrrstöðu eða með atrennu frá ákveðnum punkti, sá vinnur er keyrir lengst á afturdekkinu, úrslit fyrir þá 3. sem fara lengst. ( Keppendur sem hafa skráð sig og greitt keppnisgjöld fyrir sandkeppnina þurfa ekki að greiða sérstaklega fyrir þátttöku í prjónkeppninni.

Aðrir greiða 1.000 kr.)

  1. Keppendur og gestir verða að sýna aðgát við umhverfið og áhorfendur. Keppnin er innanbæjar og verðum við þess vegna að sýna að okkur sé treystandi fyrir svona umhverfi.

  1. Frítt er í sund eftir keppnina fyrir alla í  Sundlaugina á Akranesi.
    (Rétt við keppnissvæðið )

  1. ALLIR SEM TAKA ÞÁTT OG EINNIG ÞEIR SEM KOMA SEM AÐSTOÐARMENN EÐA ÁHORFENDUR VERÐA AÐ TAKA MEÐ SÉR GÓÐA SKAPIÐ OG HAFA GAMAN AF ÞESSU.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skildu eftir svar