|
jæja, enn vantar 4 flaggara fyrir morgundaginn. Þetta er stór hópur keppenda sem við verðum að hjálpa með því að flagga á hættulegum stöðum. Leggðu þitt af mörkum við að auka öryggi keppenda. Endilega hafið samband við Kristján Geir í 862-5679 eða kgm@itn.is. Í boði fyrir flaggara er eftirfarandi: - Tvö gjafabréf hjá KFC. Hvort gjafabréf gildir fyrir tveimur máltíðum. - 6 miðar í Sólbrekkubraut fyrir þig eða þinn/þína (brautin verður opin út september). - KFC kjúklingar á keppnisdag. Lesa meira af Betur má ef duga skal – vantar enn 4 flaggara ! Jæja stelpur. Síðasta æfing sumarsins verður haldin í kvöld kl 19:00 í Bolöldu. Sjáumst hressar á æfingunni. Kv. Tedda Nítró Lesa meira af Stelpur !!
Hver man ekki eftir mýflugu-enduro-keppninni í Svínhaga 2003? 5. þáttur SUPERSPORT 2003 er kominn á www.supersport.is þar sem sagt er frá magnaðri Enduro-keppni í Svínhaga. Gulli kaffærir KTM, Kalli KTM í björgunaraðgerðum dettur í ána, viðtöl við Einar Púka, Viggó, Gunna Þór, Gaua tímavörð, Valdi Pastrana flýgur á hausinn á Súkku, Hjörtur Líklegur stýrir mótinu og Jói Bærings lofar að hlaupa nakinn ef hann kemst ekki í topp10. Það klikkaði og ekki hljóp hann því hann fór úr axlarlið. Jói fær að efna loforðið á laugardag og hlaupa nakinn 1 hring í Sólbrekku!!! SUPERSPORT er í boði Bernhard ehf – Honda á Íslandi. BB Lesa meira af SUPERSPORT: Enduro Svínhaga á netið
Sólbrekkubraut verður lokuð frá og með fimmtudegi kl:16 fram að keppni þann 19 ágúst. Jarðýta verur að vinna í brautinni um kvöldið og er stranglega bannað að hjóla í og við brautina á meðan á vinnu stendur, engar undantekningar. Vinnudagur verður á föstudag frá kl 16:00 til kl 20:00 og jafnvel lengur ef þarf. Það fer eftir hversu margir koma að hjálpa til,þeir sem koma að vinna fá miða í brautina. Stjórn VÍR. Lesa meira af Opnunartími Sólbrekkubraut.
Hjörtur var með nýja hefilinn í Álfsnesi í morgun og hún ætti því að vera í toppstandi fyrir kvöldið. Munið eftir að kaupa miða hjá Esso í Mosó og skella þeim á hægri demparann. Lesa meira af Álfsnes í góðu standi í kvöld
Í febrúar síðastliðnum fundaði Umhverfisnefnd vélhjólafélaganna með Reykjanesfólkvangi, Landgræðslunni, Landvernd og Umhverfisstofnun. Þessi fundur var gagnlegur fyrir margra hluta sakir þó ekki væru allir sammála um málefnin. Helsta niðurstaða fundarins var sú að Umhverfisstofnun sá um að skrifa bréf til Umhverfisráðherra þar sem hann var beðinn um að beita sér fyrir því að innan ráðuneytisins yrði stofnuð nefnd sem tæki á hitamálum vélhjólafólks þessa dagana – þ.e.a.s. – umhverfismálunum. Lesa meira af Umhverfisnefnd vélhjólafélagana leitar til þín | |