Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Skráningarfrestur framlengdur til kl. 20 á föstudag!

Ákveðið hefur verið að framlengja skráningarfrest í endurokeppnina til kl. 20 á föstudag. Keppendur geta því enn skráð sig á gamla góða verðinu. Okkur er mikið í mun að fá sem flesta keppendur enda lítur út fyrir að allar aðstæður verði hinar bestu á laugardaginn, gott veður, skemmtileg braut og frábær aðstaða á svæðinu.
Lesa meira af Skráningarfrestur framlengdur til kl. 20 á föstudag!


Umhverfisnefnd VÍK fordæmir vinnubrögð skálavarðar FÍ.

Eftirfarandi tilkynning var send á fjölmiðla í dag í tilefni fréttaflutnings af eftirlitsferð þyrlu Landhelgisgæslunnar um helgina.

Umhverfisnefnd Vélhjólaíþróttaklúbbsins (VÍK) fordæmir allan utanvegaakstur vélhjóla og bíla á Íslandi. Nefndin fordæmir á sama hátt þau vinnubrögð skálavarðar Ferðafélags Íslands í Hvanngili að kæra utanvegaakstur mótorhjóla um síðustu helgi þar sem lítill eða enginn fótur reyndist fyrir kærunni eftir því sem fram kom í fjölmiðlum. Kæran hafði það í för með sér að kölluð var út þyrla Landhelgisgæslunnar með tilheyrandi kostnaði fyrir skattborgaranna. Falskar upphrópanir sem þessar skemma án efa fyrir því uppbyggilega forvarnarstarfi sem félög á borð við VÍK og Ferðaklúbbinn 4×4 eru að vinna að. Íslensk náttúra er ómetanlegur fjársjóður og hvetur Umhverfisnefnd VÍK því landverði

Lesa meira af Umhverfisnefnd VÍK fordæmir vinnubrögð skálavarðar FÍ.


Skráningu lýkur í kvöld

Skráningu í síðustu keppni ársins lýkur á miðnætti í kvöld. Þetta mun án efa verða stórglæsileg keppni enda er aðstaðan á Bolöldu að komast í toppstand. VÍK verður með heitt á könnunni í nýja húsinu fyrir keppendur og áhorfendur þannig að stemmningin ætti að vera enn meiri. Veðurspáin er líka glæsileg, sól, 14 stiga hiti og logn !!

Ekki svo gleyma að stóra spurningin er: Hver verður Íslandsmeistari? Kári og Einar eru jafnir að stigum og ljóst er að barist verður fram í rauðan dauðan.

Lesa meira af Skráningu lýkur í kvöld


Aðstoð óskast við frágang á húsinu í Bolöldu.

Undanfarna daga hafa fjölmargir lagt mikla vinnu í að standsetja húsið við Bolöldu. Næstu kvöld ætlum við að reyna að klára að standsetja húsið að innan og þá vantar okkur aðstoð við málningarvinnu, þrif og ýmsar smá lagfæringar.
Lesa meira af Aðstoð óskast við frágang á húsinu í Bolöldu.


Brautarlagning fyrir endurokeppni í kvöld

Keppnisbraut helgarinnar verður lögð í kvöld, miðvikudag, og að vanda býðst keppendum og öðrum að hjálpa til við brautarlagninguna. Þeir sem hjálpa til fá að keyra brautina að lagningu lokinni einn hring í sitt hvora áttina. Lagningin hefst kl. 18 við bílastæðið á Bolöldu.
Enduronefnd

Lesa meira af Brautarlagning fyrir endurokeppni í kvöld


Götuhjóladagar

Götuhjóladagar verða í Nítró 31. ágúst – 2. september og í tilefni af því bjóðum við 25% afslátt af öllum götuhjólafatnaði. Endilega líttu við hjá okkur, mikið úrval.
Nítró, Bíldshöfði 9, S.557-4848
Lesa meira af Götuhjóladagar

Síða 1 af 1012345...Síðasta »