|
Ég furða mig á því hvernig fréttafluttningur getur verið svona mismunandi af sambærilegum málum. Í Mogganum á föstudaginn rakst ég á litla grein þar sem segir frá mikilli svaðilför veiðimanna á jeppa, og hvernig þeir festu bílinn á kafi í mýri, hvernig ekki hefði verið hægt að nálgast bílinn nema á bát !! og það þyrfti trúlega gröfu til að losa hann upp. Þarna er ekki einu orði minnst á utanvegaakstur eða landspjöll. Það sem ég er að fara með þessu er að það vita allir hvernig fréttin hefði litið út ef hjólamenn hefðu átt í hlut. Ég undirstrika og ítreka að VÍK fordæmir utanvegaakstur hver svo sem á í hlut. Þess má einnig geta að snemma í vor hafði VÍK samband við ritstjóra Morgunblaðsins og hann beðinn að leggja okkur lið í að koma í veg fyrir utanvegaakstur með því að birta frá okkur pistla og passa upp á að okkar sjónarmið kæmi fram þegar að okkur er vegið, eða mál okkur tengd væri í umræðunni. Skemmst frá því að segja að við fáum ekkert að leggja til málanna þegar sú staða kemur upp og ekkert birt, og engin svör þegar við spyrjum hverju sætir. Hér er greinin um þessa skemmtilegu svaðilför: Lesa meira af Fréttafluttningur í Mogganum
Búið er að opna fyrir skráningu í 3. og 4. umferð íslandsmótsins sem fer fram á Akureyri 1. júlí. Það eru tvær breytingar í skráningunni. Meistaraflokkur skráir sig í E1, E2 eða E3 (flokkaskiptingin er í Enduroreglum). Til þess að skrá í Tvímenningsdeildina þá þarf aðeins annar liðsmaðurinn að skrá sig og greiðir þá gjaldið fyrir Lesa meira af Skráning hafin fyrir 3. og 4. umferð í enduro á Akureyri
Bara láta vita að það gæti orðið fín mæting þegar minnstu púkarnir ætla að hittast miðvikudagskvöldið 21 júní (kl 19:30). Þegar eru um 10 foreldrar búnir að melda sig (motoxleo@hotmail.com). Vonandi að allir komist og kannski nokkrir í viðbót. Engin sérstök dagskrá. Ætlum bara að lofa krökkunum sem eru að stíga sín fyrstu skref að hittast og kynnast sportinu á sínum hraða. Tökum léttar æfingar. Munið að þetta er hugsað fyrir 50cc flokkinn (PW oþh). Athugum veðurspá eftir helgi og ákveðum útfrá því hvort við notum Álfsnesið eða Bolöldu. Kv Púkapabbi Lesa meira af PW flokkur
Einn umtalaðasti MX töffari landsins, frumkvöðull MX freestyle á Íslandi, einn allra besti og djarfasti Super Motard ökumaður okkar og sá yfirlýsingaglaðasti í sportinu – hinn eini sanni "Jói Kef" – stórslasaðist í gærkvöldi. Jói hefur verið frekar óheppinn þetta keppnistímabil; braut úlnlið í vetur, braut bakið og nokkur rifbein um páskana og í gærkvöldi braut hann fótlegg og rifbein, maskaði ökkla og marðist illa á baki og upphandlegg. Að venju slasaðist Jói með stæl (samt var hann ekki í braut og ekki á hjóli…!!!) og hans fyrsta comment var: "Þett’er Jói Keeeef…". BB Lesa meira af Jói Kef stórslasaður!!!
Allir að mæta / vinnudagur Bolöldu. Á morgun sunnudag 18. júní. verður vinnudagur í Bolöldu. Stjórn VÍK skorar á alla félagsmenn og aðra áhugamenn um sportið að mæta kl: 12:00 og vinna í MX brautinni. Unnið verður frá kl: 12:00 til kl: 14:00. Þeir sem mæta fyrir kl: 12:00 og skrá sig til vinnu fá 3 brautarpassa að launum. Taka með sér hrífur og skóflur. Verkefni dagsins er að grjóthreinsa brautina. Ef veður leyfir verður boðið uppá grillaðar pylsur og gos fyrir alla sem mæta til vinnu. Foreldrar athugið að frítt er í barnabrautina á morgun þannig að takið endilega ormana með og gerum daginn að góðum degi. kveðja, Stjórn VÍK Lesa meira af Vinnudagur á Bolöldu sunnudaginn 18. júní
Eins og flestir hafa tekið eftir verður SUPERSORT í fríi í sumar og mun ekki gera nýja sjónvarpsþætti af MX keppnum sumarsins, né taka myndir og skrifa um mót í blöð og tímarit. Ástæðan er einfaldlega sú botnlausa vinna sem fer í svona verkefni. Hinsvegar er verið að vinna í því að koma 2003 seríunni á netið, en þar er að finna frábærar glefsur af MX og Enduro keppnum. Fyrsti þáttur er kominn á www.supersport.is með viðtöl við fullt af MX fólki; Raggi lofar sigri og Mikki Matsjó spennir "þvottabrettið". BB Lesa meira af SUPERSPORT 2003 serían á netið | |