|
Einhverjir leigusendar voru að koma í hús, þannig að enn er hægt að skrá sig og vera með í keppninni fyrir norðan. Skraningar sendast á skraning@motocross.is. Nú er bara að kíla á þetta og smella sér í skemmtiferð norður, og keppa í stórskemmtilegri braut. Lesa meira af Skráning opin – aftur Nú eru allir leigusendar í eigu MSÍ uppseldir þannig þeir sem skrá sig héðan í frá þurfa að eiga sendi sjálfir(klukkan er 23:25) Lesa meira af Uppselt í keppnina
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra mun í dag ýta úr vör átaki gegn utanvegaakstri. Ferðaklúbburinn 4×4 og Vélhjólaíþróttaklúbburinn standa að átakinu í samvinnu við Ferðafélag Íslands, Umhverfisstofnun, Landgræðsluna, Landvernd og fleiri aðila. Kynnt verður merki og slagorð átaksins auk þess sem ráðherra mun opna formlega vefsíðu átaksins og flytja nokkur orð. Lesa meira af Umhverfisráðherra ýtir úr vör átaki gegn utanvegaakstri
Gaman að segja frá því að Víkurfréttir hafa virkilega tekið af skarið og eru með ólitaða umfjöllun um motocrossið/endúróið. Það þýðir jú auðvitað að eitthvað er talað um vitleysingana sem eru spóla upp gróið land eða aka innanbæjar á óskráðum hjólum. En það þýðir að mest er um jákvæða umfjöllun – því mest af því sem er að gerast í þessari íþróttagrein er jú jákvætt. Frábært. Endilega kíkið á nýjasta blað Víkurfrétta. Og af hverju ekki að senda þeim línu og hrósa fyrir alvöru opinn fréttaflutning (www.vikurfrettir.is)? Hver veit nema við fáum svo ALVÖRU hjólaíþróttasvæði í Hafnarfirði áður en langt um líður? Kv Þórir Lesa meira af Vikurfréttir með umfjöllun um sportið í dag
Vegna bilunar í skráningarkerfi hefur skráningarfresturinn fyrir Íslandsmótið í endúró verið framlengdur um einn sólarhring. Skráningunni lýkur því 29.júní kl 23.59. Einnig er hægt að skrá sig með tilkynningu á hakon@opex.is og því verður svarað með upplýsingum um bankareikning. Lesa meira af Skráningarfrestur framlengdur
Motocrossbrautin í Bolöldu er lokuð í kvöld vegna ýtuvinnu. Álfsnes er hins vegar opin, þar hefur ýta verið að vinna við að laga brautina, og á að hleypa umferð á brautina í kvöld aftur. Lesa meira af Bolalda lokuð, Álfsnes opið Síða 1 af 1312345...»Síðasta » | |