Æfingin sem er á morgun frá kl 10-12 samkvæmt æfingaplaninu, verður í nýju sandbrautinni í Þorlákshöfn, en ekki í Bolöldu. Þar ætlar Einar #4 að taka menn í gegn og kenna mönnum að keyra í sandi. Krakkaæfingin verður samt sem áður í Bolöldu.
Æfingin sem er á morgun frá kl 10-12 samkvæmt æfingaplaninu, verður í nýju sandbrautinni í Þorlákshöfn, en ekki í Bolöldu. Þar ætlar Einar #4 að taka menn í gegn og kenna mönnum að keyra í sandi. Krakkaæfingin verður samt sem áður í Bolöldu. Selfossbrautin er lokuð í dag föstudag og á morgun laugardag til kl 16 vegna námskeiðahalds. Eftir kl. 16 á morgun er hún opin og eru miðar í Pylsuvagninum við brúarendann. Kveðja Stjórn MÁ Allar myndirnar sem ég tók eru komnar inn á vefinn. Ég valdi einhverjar 136 myndir á hraðferð en ákvað að birta síðan allar myndirnar sem ég tók undir “Aukamyndir”. Það fer ekki á milli mála að í þann stutta tíma sem ég stoppaði á Hellu þá hélt ég takkanum niðri á myndavélinni. Enda losar þetta 900 myndir. Fyrir þá keppendur sem trufluðust við að ég fleygði myndavélinni svo gott sem framan í ykkur þá fyrirgefið þið mér vonandi þar sem myndirnar réttlæta gjörðina… vonandi. Njótið myndanna. Kv. / Gaui Brautin í Ólafsvík hefur verið opnuð að nýju en aðeins fyrir þá sem greiða aðgangseyri í brautina – öðrum verður vísað frá og meinaður aðgangur í brautina. kveðja Brautarstjóri Nú er stutt í Klausturskeppnina og því mikilvægt að greiða félagsgjöldin snemma. Það tekur smá tíma að útbúa skírteinin og síðan er frí á fimmtudaginn eftir viku svo við viljum hvetja ykkur að endurnýja tímanlega. Upplýsingar um bankanúmer og fleira fyrir AÍH er að finna hér -> http://www.motocross.is/index.php?option=com_content&task=view&id=988&Itemid=1 Við viljum einnig þakka fyrir góða þátttöku á Hellu keppninni. Óskum Hjálmari og öðrum sem slösuðust skjótum bata. Alltaf slæmt þegar slys gerast en þökkum þó fyrir að ekkert alvarlegt slys varð á meðan keppninni stóð. Kv. Stjórn AÍH | ||