|
Jæja tíminn líður hratt, námskeiðið okkar í viðhaldi á hjólum fyrir stelpur er að skella á en dagsetningin er 26. apríl kl. 20.00. Námskeiðið er í boði Nítró og hvetjum við allar stelpur sem eru að hjóla á annað borð að mæta. Þarna verður farið í einföld atriði eins og t.d. að skipta um kerti og höfum við allar gott af því að vita meira um hjólið. Skráning er á tedda@nitro.is. kv. Tedda Nítró Lesa meira af Námskeið í viðhaldi f. stelpur Undanfarnar vikur hafa staðið yfir breytingar á bakvinnslu í Félags- og skáningarkerfinu og á kerfið nú að vera öruggara og betra. Fyrir hinn almenna mótorhjólamann er viðmótið mjög lítið breytt þannig að flestir ættu að kannast við sama gamla kerfið. Við viljum minna félagsmenn VÍK og annarra félaga á að nú er hægt að greiða félagsgjöldin og fljótlega hefst Lesa meira af Greiðsla félagsgjalda
Allir þekkja hrakfallabálkinn Jóa Kef, en hann er einn af flottustu og brjáluðustu stönturum landsins. Í nýjasta SUPERSPORT þættinum sem frumsýndur verður kl. 18:30 í kvöld á SÝN sýnir Jói nokkra glæsilega takta á Honda CRF250R fyrir utan Smáralindina. Síðasti þátturinn sem fjallaði um drifter keppni sportbíla er kominn á www.supersport.is. SUPERSPORT er í boði Bernhard ehf. – Honda á Íslandi. Bjarni Bærings.
SUPERSPORT skellti sér í félagsmiðstöðina Trufluð Tilvera í Garði sl. þriðjudagskvöld og kynnti Motocross sportið. Fjöldi unglinga mætti á svæðið, kynnti sér sportið, Honda torfæruhjólin, horfði á SUPERSPORT á breiðtjaldi og nokkrir heppnir fengu góðar gjafir, þ.e. DVD diskinn Viðhald Torfæruhjóla frá Bernhard ehf. og bol frá Púkanum. Nokkrir í hópnum eiga hjól, margir hafa áhuga á að prófa sportið og aldrei að vita nema við sjáum góða framtíðarökumenn úr Garði í framtíðinni. Það var sérlega ánægjulegt að sjá hve margar stelpur höfðu áhuga á sportinu, en þær voru í meirihluta Myndir frá kvöldinu eru komnar inn á www.supersport.is. Bjarni Bærings Lesa meira af Motocross kynning í Truflaðri Tilveru
Sólbrekkubraut er opin og opnunartími um helgar er frá 13 til 18,ekki er buið að setja fasta tíma á opnun virka daga. En það verður gert og sett inná motocross.is eftir helgi,vill minna alla á að miðar fást hjá ESSÓ í Hafnafirði og Reykjanesbæ. Mikið hefur verið um að menn koma miðalausir og segjast hafa gleymt að kaupa miða eða þeir séu ekki til,en við vitum öll að það gengur ekki að ætlast til að þeir sleppi við að borga, svo er aðrir sem borga samviskulega alltaf og það er ekki hægt að halda brautum við eins og allir vilja, ef ekki koma inn peningar. Kv Stjórn VÍR. Lesa meira af Sólbrekkubraut
Í gær og dag er verið að vinna á jarðýtu við gerð motocrossbrautar upp á Bolöldu. Verkinu miðar ágætlega, en ég vil endilega biðja menn sem eru að hjóla þarna að vera ekki að hjóla nálægt vinnutækjunum, en töluvert var um það í gær að menn voru að hjóla óþægilega nálægt ýtunni. Hitt er annað mál að nú er frost að fara úr jörðu og rennandi blaut drullan liggur ofan á klakahellunni svo að næstu daga verða allir slóðar fyrir ofan bæinn eitt drullusvað og að þvælast í þeim á hjóli er ekkert annað en óþarfa slit á hjólinu (að keyra í Lesa meira af Ástand svæða | |