|
Þessi keppni er fyrst og fremst skemmtikeppni til fjáröflunar fyrir það verkefni sem VÍK er að hefja á nýju akstursæfingasvæði við Bolöldur með byggingu motocrossbrauta og endurobrauta og bætta aðstöðu fyrir hjólafólk. Hér fyrir neðan eru reglur og sértilhögun Páskaendurokeppni VÍK 13. apríl 2006. Keppnin verður í gömlu kartöflugörðunum við golfvöllinn Korpúlfsstöðum (á milli spennistöðvarinnar undir Úlfarsfelli og Innnes (Hunts og Gevalia auglýsinganna). Keppnin er 4 klukkutíma keppni (ef veður er slæmt verður keppnin stytt í 3 klukkutíma) og er fyrir alla sem Lesa meira af Páska-skemmti-enduro-keppni. Mike Lafferty KTM sigraði 3ju umferð AMA National Enduro um síðustu helgi. Lafferty sigraði allar 3 leiðirnar og var í feikna stuði. Russel Bobbit KTM sem vann síðustu umferð varð annar og bróðir Mike, Rich Lafferty líka á KTM hafnaði í 3ja. Fjórða umferð er svo um mánaðarmótin næstu, eða 30 april. Lesa meira af Mike Lafferty í stuði
Lögreglan á torfæruhjól !!! = 1. Apríl. Við þökkum Árna Friðleifssyni fyrir að taka þátt í gríninu með okkur, húmorinn allveg í lagi á þeim bænum. Engu að síður er Árna og lögreglunni í Reykjavík full alvara þegar kemur að keyrslu crosshjóla innan borgarmarka, það er bannað. Lesa meira af 1. April
Jæja, nú er allt að gerast. Heimsmeistarakeppnin í Motocross hófst um helgina, og er ekki annað að sjá en hún lofi góðu með framhaldið, þótt að nokkrir hafi dottið úr keppni. Það var Frakkinn Sebastian Tortelli KTM sem kom sterkur inn og var í sérflokki með Everts, en þeir skáru sig nokkuð úr. Tortelli vann fyrra mótoið og Everts það síðara, Þannig að Everts varð í fyrsta, Tortelli í öðru og Tanel Leok á Kawasaki varð í 3ja o/a. Josh Coppins sem varð númer 2 í fyrra hætti við að taka þátt vegna axlarmeiðsla sem hann hefur átt í. Liðsfélagi Tortelli, Michael Pichon hætti keppni, var með 40° hita, crassaði og hætti. Í MX2 var allt brjálað, hörku keppni, 6 keppendur sem skiptust á forystu, en þegar uppi var staðið, þá voru það Lesa meira af MX GP hófst um helgina og Tortelli kemur sterkur inn
Þrekæfingarnar halda áfram í apríl. Jón Arnar er þó hættur í bili en hann verður nær allan apríl í æfingaferð í Portúgal. Þeir sem hafa tekið þátt vilja þó ólmir halda áfram enda mikil stemning á æfingunum. Þjálfaramálin verða hins vegar í höndum okkar Össa í Nítró sem ætlum okkur að halda fullri keyrslu þrátt fyrir forföll Ólympíufarans. Æfingagjald verður því ekkert þennan mánuðinn – einungis stemningin af því að æfa með félögunum! Mæting kl. 19.45 við Laugardalslaugina, mánudags- og miðvikudagskvöld. Keli formaður Lesa meira af Þrekæfingar í apríl – ekkert æfingagjald
Árni Friðleifsson yfir mótorhjólalögga hafði samband við motocross.is vegna fjölda kvartanna um crossara í kringum borgina. "Nú er mál að þetta stoppi" sagði Árni og kvaðst ætla að mæta þessu af hörku um helgina. Lögreglan í Reykjavík hefur fjárfest í nýjum torfæruhjólum til þess að hafa uppi á þessum mönnum sem aka innanbæjar og munu sýna fulla hörku. Þeir munu verða á ferðinni í dag á nýju hjólunum en einnig má búast við eftirliti úr lofti þar sem Lögreglan hefur einnig gert samning við Þyrluþjónustuna sem mun sinna eftirliti og beina laganna vörðum á nýju torfæruhjólunum í eftirför eftir villingunum sem stunda akstur innan borgarmarkanna. Nýju hjólin verða til sýnis hjá Versluninni MOTO/KTM í dag laugardag á milli 16-18 og munu Árni og félagar verða á staðnum. Lesa meira af Eftirlit hert til muna
Síða 11 af 11« Fyrsta«...7891011 | |