Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Hjálp óskast – prufukeyrsla í boði

Brautin í Bolöldu er að verða verulega flott. Í gær var að mestu lokið við að forma brautina en talsverð vinna er enn eftir við frágang og girðingar og fleira. Í dag mega þeir sem koma með skóflur og hrífur og hjálpa til við að laga til batta og palla eða koma á jeppum og þjappa brautina fengið að prófa brautina á milli 16 og 18. Þeir þurfa að mæta fyrir kl. 14 og láta Hjört vita af sér. Aðrir fá ekki að keyra brautina en allir eru velkomnir sem eru til í að hjálpa til – muna bara eftir verkfærum.

Ath. að einungis má keyra BRAUTINA í gryfjunum – ALLS EKKI keyra á svæðunum sem búið er að slétta s.s. brekkuna ofan við gryfjuna en þar stendur til að græða svæðið upp.

Lesa meira af Hjálp óskast – prufukeyrsla í boði


Fréttir frá Bolöldu eftir laugardaginn frá Hirti

Sælir félagar. Það er búinn að vera rífandi gangur upp í crossbraut í dag. Það hafa hátt í 100 bílar komið til að sjá hvað er að gerast og allir trúa varla sínum augum. Menn hafa einfaldlega ekki séð aðrar eins framkvæmdir við motocrossbraut áður. Það eru menn sem eru búnir að vera þarna nánast stanslaust frá því á fimmtudag og fara þar fremstir meðal jafninga Kalli Tá, Keli formaður, Jóhann, Guðberg og margir aðrir, en
Lesa meira af Fréttir frá Bolöldu eftir laugardaginn frá Hirti


Stórsýning Púkans í Smáralind 1.Maí

Verslunin Púkinn á Grensásvegi verður með magnaða stórsýningu í Smáralind á mánudaginn, 1.maí kl. 12-18.  Þar verða sýnd supermotard, motocross og enduro hjól frá Husqvarna og ítölsku lúxus-götuhjólin frá MV Agusta, t.d. Brutale og F4 1000 hjólin – auk ThorMX, FOX og Dragon fatnaðar. Rúsínan í Smáralindar-endanum verður MV Agusta Tamborina 1000 – eitt allra dýrasta götuhjól landsins, framleitt í 300 eintökum og kostar litlar SEX MILLJÓNIR…!!!  Sjáumst í Smáralind, Púkinn.

Lesa meira af Stórsýning Púkans í Smáralind 1.Maí


Frétt frá motul.is

Flott tilboðsverð á ALLOYMX  fatnaði næstu vikuna Vinsamlegast skoðið á www.motul.is    Þeir sem vilja kaupa motul smurolíur,á Reykjavíkursvæðinu, geta pantað hjá okkur  og við afhendum olíurnar frítt 10 – 12 maí fyrir sunnan. Við bjóðum pakkaverð á olíum. Allt sem þú þarft af olíum og hreinsiefnum fyrir hjólið. Hágæða smurolíur – flott verð. Þeir sem hafa skráð sig á Öhlins fjöðrunarnámskeiðið hjá Thomas Petterson, hér fyrir
Lesa meira af Frétt frá motul.is


Félagakerfið komið í lag

Félagakerfið er komið í lag aftur og því kjörið fyrir alla að greiða  félagsgjöldin sem fyrst. Sérstaklega viljum við benda þeim á sem ætla  að keppa á Klaustri að best er að ganga frá greðslu sem fyrst og svo  auðvitað þeim sem keppa í fyrsta Íslandsmótinu í enduro sem verður  eftir 2 vikur.
Lesa meira af Félagakerfið komið í lag


Ofurhugabrjál með Jóa Kef í SUPERSPORT

Glænýr ofurhugaþáttur með Jóa Kef var sýndur eftir Supercross í gærkvöldi í Púkanum og Nitro, en í þættinum sýndi Jói að hann fer jafn létt með vitleysuna á krossara og stóru götuhjóli!!! Þessi þáttur er sá 9. og jafnframt lokaþáttur í vetrar-seríunni sem sýnd hefur verið á SÝN. Enn er óráðið hvort SUPERSPORT verður í loftinu í sumar og á hvaða stöð en viðræður standa yfir við sjónvarpsstöðvar og styrktaraðila. Nýji þátturinn er kominn á www.supersport.is og er í boði Bernhard ehf. – Honda á Íslandi. Bjarni Bærings.
Lesa meira af Ofurhugabrjál með Jóa Kef í SUPERSPORT

Síða 1 af 1112345...Síðasta »