Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Townley ekki með í supercossinu í vetur

Einn af betri ökumönnum sem komið hafa fram í mörg ár Ben Townley, 21 árs frá Nýja Sjálandi slasaði sig á hné við æfingar á Florida í fyrradag.  Það er því ljóst að hann mun ekki keppa í Supercrossinu (East Series) í vetur fyrir Team kawasaki.  Hann mun gangast undir aðgerð fljótlega og taka stefnuna á AMA Motocross í sumar sem byrjar í maí.

Lesa meira af Townley ekki með í supercossinu í vetur


Stelpukvöld í kvöld í Nitró

Jæja stelpur nú er komið að stelpukvöldinu okkar frá kl. 20:00-22:00 í kvöld. Endilega takið með ykkur vinkonur til að kynna þeim sportið. Við komum til með að sýna frá stelpukeppninni sem haldin var í Bretlandi núna í sumar, þar kepptu þrjár stelpur frá Íslandi og stóðu sig frábærlega. Einnig verðum við með kynningu á nýjum spennandi stelpuhjólum og barnahjólum.  Okkur langar einnig að fara yfir keppnisfyrirkomulag í sumar og sjá hversu margar ætla að keppa því að við stefnum að því að fá sér flokk fyrir stelpur.
Léttar veitingar í boði Nítró / Bílanaust. ATH. inngangur er hægra megin við aðalinngang, þið sjáið Kawasaki fánann þar. Sjáumst hressar, Tedda Nítró
Lesa meira af Stelpukvöld í kvöld í Nitró


Motocross og Skautahlaup

Sem iðkandi í Motocross og áhugamanneskja um skautahlaup datt mér í hug að lýsa því sem mér finnst vera óhugnanlega líkar íþróttir!!
Hafið þið tekið eftir því þegar Skautahlauparar hita upp þá er það alveg sambærilegt við æfingu í motocrossi rúlla þetta í rólegheitum en gefa í öðru hvoru, taka nokkrar snöggar beyjur rúlla svo aftur, gefa svo allt í botn til
Lesa meira af Motocross og Skautahlaup


Pitbike

Nýtt á Íslandi TM Pitbike, 110cc Monster, algjört æði. Þeir sem hafa prófað gripinn eru alveg heillaðir. Þeir hafa séð umfjöllun um pitbike í erlendum tímaritum en vissu ekki alveg um hvað málið snerist. Núna verða þeir að eignast 1 stykki. Þetta er svo gaman.
Verð aðeins 189 þúsund með skráningu.
Lesa meira af Pitbike


Sólbrekkubraut

Loksins er hægt að leyfa umferð á ný á Sólbrekkubraut það er að segja þegar veður og færð leyfa.
Lesa meira af Sólbrekkubraut


Ryno vinnur fyrstu umferð Worcs

Ryan Huges (Suzuki) vann fyrstu umferð Worcs (World off-road Championship series) í Phoenix, Arizona um síðustu helgi.  Keppnin var haldin á Speedworld brautinni og var ekið í tvo tíma við erfiðar aðstæður og gerði mikið ryk keppendum lífið leitt.  Ryan sýndi talsverða yfirburði en Curt Caselli (KTM) gerði harða atlögu að honum án þess þó að ná að ógna honum nokkurn tíma.  Úrslitin voru:

Lesa meira af Ryno vinnur fyrstu umferð Worcs

Síða 5 af 11« Fyrsta...34567...Síðasta »