|
Það voru einhverjir að hjóla núna um helgina á þeim slóðum sem við hjólamenn og konur í þorlákshöfn erum að fá frá sveitarfélaginu og landgræðslunni, viðkomandi aðilar eru að skemma fyrir okkur sem erum búnir að leggja mikla vinnu í að semja við landgræðsluna. Það var einn bóndi í nágrenninu sem kvartaði og segist kæra ef þetta verði gert um næstu helgi og þá eru samningar okkar í mikilli hættu og þetta eru samningar fyrir alla hjólamenn í landinu. Fyrir hönd akstursíþróttadeildar Þórs Þorlákshöfn, kveðja Sindri Lesa meira af Frá hjólamönnum í Þorlákshöfn VÍK hélt sinn mánaðarlega félagsfund í síðustu viku. Um 25 manns mættu og nutu fróðleiks Inga McGrath, sem galdraði fram hvert stórmótið á fætur öðru upp á breiðtjald og sýndi okkur frægustu tilþrifin í sögu motocross og supercross – ásamt því að gefa okkur smá innsýn í glænýjan DVD disk – Great Outdoors 2005 – sem allir þurfa að eignast. Stjórn VÍK þakkar Inga McGrath kærlega fyrir sitt framlag, sem og tæknimönnunum Arnari og Aroni Icemoto. Stjórn VÍK
Lesa meira af Vel heppnaður félagsfundur VÍK
Vélhjólaíþróttaklúbburinn hefur, undir stjórn fulltrúa ÍSÍ, ráðist í að móta stefnu vélhjólaíþróttarinnar á Íslandi og verður það unnið í samvinnu við HÁ verkfræðistofu. Tilgangurinn er að móta stefnu í mikilvægum málum á borð við aðstöðu til vélhjólaaksturs, umhverfismál, keppnismál, félagsstarf, kynningarmál ofl. Nú er að hefjast vinna þar sem leitað er eftir skoðunum og hugmyndum þeirra sem stunda sportið. Ef þú hefur áhuga á framgangi sportsins gefst þér kostur á að taka þátt í þeirri vinnu. Málefnavinnan hefst næstkomandi fimmtudagskvöld, 2. febrúar og fer hún fram í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að viðkomandi taki þátt í tveimur til þremur umræðufundum sem hvor um sig tekur eina kvöldstund. Hafir þú áhuga á þátttöku þá vinsamlegast sendu póst á thordur@haverkfraedistofa.is. Lesa meira af Viltu taka þátt í að móta framtíð vélhjólaíþróttarinnar á Íslandi?
Bara að mynna á að kjósa okkar mann í prófkjörinu í andyrri Laugardalshallar í dag á milli 10 og 18,00. Þegar farið er að hjóla í dag þá munið að kjósa Óskar sem á inni hjá okkur atkvæðin okkar vegna þess að það var hann sem kom mest að því að við erum með motocrossbrautina á Álfsnesi meðan hann var varaborgarfulltrúi í borgarstjórn á síðasta kjörtímabili. HLJ Lesa meira af Prófkjör Framsókn
Við höldum uppteknum hætti og sýnum supercrossið á breiðtjaldi í kvöld. Auðvitað eru allir velkomnir og vonumst við til að sjá sem flesta. Jón áGúst mun sýna spilagaldra í hlé svo vertu viss um að missa ekki af þessari frábæru sýningu. Lesa meira af Supercross í Púkanum
Supercrossið Verður sýnt í kvöld 27/1/2006 kl 20,30 allir velkomnir léttar veitingar í boði Nítró. Lesa meira af Súpercross í Nitró
Síða 1 af 1112345...»Síðasta » | |