Leiðbeiningar við kaup á miðum.

Skráningakerfið sem er notað við að skrá í keppnir er notað til þess að selja miða á árshátíðina. Kerfið virkar nákvæmlega eins og þegar skráð er í keppni. Menn skrá inn sitt númer, haka svo við hvað marga miða á að kaupa (mest hægt að fá 4 í einu, en það má kaupa mörgu sinnum) og ganga frá greiðslunni. Þeir sem eru ekki með keppnisnúmer frá VÍK þurfa að slá inn 9999 til þess að kaupa miða og fylla svo út

 kreditkortaupplýsingar til þess að ganga frá greiðslu. Ath. aðeins er hægt að greiða með kreditkortum á netinu. Þeir sem geta ekki nýtt sér þá þjónustu er bent á að hafa samband við Helgu í Moto til þess að kaupa miða. Þeir sem kaupa miða á netinu fá miðana sína afhenta við innganginn á árshátíðinni gegn framvísun skilríkja. hægt er að sjá hvort miðakaup hafa tekist með því að skoða keppendur á árshátíð VÍK.
Ath. Miðað er við 18 ára aldurstakmark, en gerðar eru undantekningar ef unglingar eru í fylgd með foreldrum, en þá er ætlast til þess að ungingarnir séu farnir út fyrir miðnætti. Og þeir eru algjörlega á ábyrgð foreldra

Smellið hér til að kaupa miða á netinu

Skildu eftir svar