|
Um helgina fór fram síðasta umferð heimsmeistaramótsins í Motocross sem haldin var á Írlandi. Stefan Everts Yamaha sigraði, en fékk mikla keppni frá Ben Townley KTM sem hélt honum við efnið allan tímann. Townley leiddi nokkra hringi í seinna mótoi, en Everts náði framúr og sigraði. Josh Coppins Honda varð þriðji o/a. Flestra augu beindust að MX2 þar sem Alessi bræður voru mættir frá USA til að taka þátt. Mike Alessi KTM Lesa meira af Síðasta umferð heimsmeistaramótsins
Vefurinn fékk senda þessa samantekt frá Hirti Líklegum, og við þökkum honum kærlega fyrir það. Alls hafa 343 keppendur tekið þátt í einni eða fleirum keppnum í Íslandsmótinu frá upphafi í báðum deildum. Reitur 1. Fyrst koma þeir sem eru 25 efstu til Íslandsmeistara 2005, en þar á eftir eru nöfn allra keppenda frá upphafi í stafrófsröð og fast númer. Reitur 2. Startað hefur verið í 38 keppnir og hefur Einar Sig. lagt oftast af stað eða Lesa meira af Samantekt á Íslandsmótinu í enduro frá 1998-2005
Í síðustu könnun vorum við að kanna hvað ungi ökumaðurinn á heimilinu væri gamall. 437 tóku þátt, og niðurstaðan er sú að fjölmennasti hópurinn er 14-15 ára, svo koma 12-13 ára. Nánari niðurstöður eru hér fyrir neðan. Þetta sýnir að hópurinn er fjölmennur og dreyfður um aldurssviðið, og það er vonandi að þessir krakkar fái allir tækifæri til að stunda sína íþrótt hjá sínu íþróttafélagi í sátt við lög og reglugerðir, en fái það ekki á tilfinninguna frá blautu barnsbeini að þau séu hálfgerðir glæpamenn. Yfir í næstu könnun. Nú spyrjum við hvernig mönnum líkar við fyrsta endurohringinn sem búið að að leggja á nýja svæðinu við Bolöldu. Lesa meira af Ný könnun
Mike Alessi tekur þátt í síðustu keppni heimsmeistaramótsins í motocross sem fram fer á Írlandi núna um helgina. Drengurinn hefur stipmlað sig rælkilega inn þar sem hann og Mark De Reuver sigruðu sinn hvorn riðilinn í tímatökunum. Í MX1 var það Coppins sem var hraðastur, 0,06 sek á eftir honum var Everts, en svo komu næstu fjórir með sekúntu millibili. Aðal keppnin fer svo fram í dag. Lesa meira af Alessi mættur til Írlands
Nú þegar stelpunámskeið Nítró er hálfnað þá hafa 22 stelpur mætt. Þetta er hreint frábær mæting og það hefur verið mjög góð stemning hjá okkur. Seinni hlutinn verður á mánudag og þriðjudag 19. og 20. sept og hvetjum við sem flestar til að mæta, því það munar um hvern kennslutímann. Sjá nánar á www.nitro.is Frábær grein í Mogganum í dag þar sem fjallað er um okkur stelpurnar í crossinu og flott hópmynd frá enduroferð stelpna nú í haust. Kíkið í Moggann!!! Kv. Tedda Nítró Lesa meira af Fráááábært!!!
Við hjá Motul.is ætlum að bjóða góð verð á Öhlins fjöðrun fyrir 2006, motocross & enduro. Til að það sé hægt , þarf að panta framgaffla og afturdempari nú í haust, til vera viss um að fá dempara, þar sem eftirspurn eftir Öhlins hefur aukist margfalt um allan heim, síðasta ár og nú. Skoðið frétt dagsins á www.motul.is kveðja Motul,, EINI Olíufurstinn á landsbyggðinni. !! Lesa meira af Frá Motul | |