Vegna fyrirspurna um stöðuna í Motocrossinu

Vegna fyrirspurna sem hafa komið um stöðuna í B riðli þá er rétt að árétta eftirfarandi.  Meistaraflokkur er þannig skipulagður að einungis 20 fyrstu sætin í A riðli gefa stig til Íslandsmeistara.  Þeir sem lenda í B riðli hljóta því engin stig til íslandsmeistara.  Meistaraflokkur er sem sagt einn flokkur sem er skipt í tvo riðla vegna fjöldatakmörkunar á ráslínu (24 keppendur) og einungis 20 fyrstu sætin gefa stig samkvæmt reglum FIM.  Fyrsti maður í B riðli er því í raun í 25 sæti.  Það kom fram óánægja á síðustu keppni með það að keppendur í

 A riðli sem voru með lélega tíma skyldu ekki vera felldir niður í B riðil.  Staðreyndin er sú að það hafa verið laus pláss í allt sumar í A riðli sem öllum er frjálst að þiggja sem vilja.  Það hafa að meðaltali einungis 22 keppendur raðað sér á ráslínu í A í sumar.  Keppendum með bestu tímana í B hefur þannig verið boðið að færa sig upp en þeir hafa afþakkað boðið.  Einnig var sett út á það að keppendur í B riðli sem eru með bestu tímana séu ekki neyddir til þess að færa sig í A.  Eins og áður kom fram er þeim boðið það en þeim er frjálst að afþakka.  Við “neyðum” ekki keppendur til þess að taka þátt í A riðli.  Það að krækja sér í stig til Íslandsmeistara er gulrótin til þess að lokka keppendur upp í A riðil.

 

Fyrir hönd VÍSÍ.

Aron Reynisson

Skildu eftir svar