Það er ekki nein skiplögð ferð á vegum ferðaskrifstofu í boði í ár. Hinsvegar ætla nokkrir einstaklingar að taka sig saman og fara á keppnina. Ferðaáætlunin er eftirfarandi:
Flug til París á föstudagsmorgun 23. sept. með Icelandair og tl baka á mánudag 26. sept. Ódýrast að bóka sjálfur á netinu. Verð eins og er ca 35.000 kr flugmiðinn.
Farið beint til Ernee á föstudeginum með bílaleigubíl eða rútu og gist í tjaldi. Dvalið á keppnisstað til
Lesa meira af Tjaldferðalag á MXoN

Þrettándu og fjórtándu umferðir heimsmeistarakeppninar í Enduro fóru fram um helgina í Finnlandi. Merriman var hraðastur í E2 flokknum á Yamaha, en var kærður fyrir að mæta of seint á ráslínu vegna þess að hann var að taka bensín utan pittsins, og var dæmdur úr leik í annarri umferðinni. UFO liðið ætlar að áfría þessum dóm til FIM dómstólsins. Það er líka að frétta að íslandsvinurinn Anders Eriksson lenti í árekstri á æfingu á fimmtudag og tók höggið á löppina og var svo fluttur á sjúkrahús í Helsinki í 12 tíma aðgerð. Úrslitin voru annars þessi:
Frá Litlu-Kaffistofunni hefur borist sú beiðni að ökumenn torfæruvélhjóla haldi sig við "litlu inngjöfina" á athafnasvæðinu við hliðina og aftan við húsið. Borið hefur á því að grjóti hafi verið "spýtt" yfir bíla og menn og jafnvel gengið svo langt að steinar hafi smollið á bensíndælum. Þau ykkar sem nýtið þessa frábæru aðstöðu hjá Stefáni kaffistofustjóra og hans fólki eruð vinsamlegast beðin um að fara rólega um á planinu og í næsta nágreni við Kaffistofuna.