Dagskrá og reglur fyrir Ólafsvík

Hér fyrir neðan eru reglur og dagskrá fyrir fyrstu umferð Íslandsmótsins í Motocross sem haldin er á laugardaginn 11. júní í Ólafsvík. Kynnið ykkur vel allar reglurnar og dagskrána, svo að ekkert komi á óvart og allt renni smurt.  Góða ferð og geymið hraðaksturinn þangað til í brautinni  🙂

[ Úrslitin frá Ólafsvík ]

Framkvæmdarstjórn: Motocrossfélag Ólafsvíkur.

 Keppnisstjóri:  Rúnar Jóhannsson

 Brautarstjóri:  Viggó Örn Viggósson

 Öryggisfulltrúi:  Kristmundur / Svanur.

 Tímavörður:  Arnar Geir Kárason / Aron Reynisson.

Ábyrgðarmaður:  Rúnar Jóhannsson.

Dómnefnd:  Hákon Ásgeirsson, Páll Jónsson, Heimir Barðason.

Læknir:  Mannaður sjúkrabíll.

 

1. Reglur og skyldur keppenda.

Keppnin er haldin samkvæmt reglugerð um akstursíþróttir og aksturskeppni.18. apríl 2000 Nr. 257

Keppt er eftir alþjóðlegum reglum FIM um Motocross.  Rétt er að minna keppendur og aðra sem hlut eiga að máli að motocross reglur gilda fyrir þessa keppni og er þær að finna á www.motocross.is undir keppnisreglur / keppnisreglur motocross.

Að gefnu tilefni er rétt að benda keppendum á að öll aðstoð og bensínáfyllingar skulu fara fram á “Pittsvæði”. Ekki er leyfilegt að rétta keppanda hjálparhönd í braut nema að öryggi hans sé í hættu og skulu starfsmenn keppninnar sjá um það.

 

2. Dagskrá keppninnar.

 

Keppendum ber að mæta á startsvæðið eftir tímatöflu og vera mættir í skoðun á réttum tíma.

11:00 Mæting fyrir keppendur í öllum flokkum.

11:00 Skoðun hjóla

11:15 Tímataka 85cc og kvennaflokkur

11:40 Tímataka 125cc flokkur

12:00 Tímataka meistaraflokkur A

 

12:20 Tímataka meistaraflokkur B

 

12:40 Moto 1 85cc og kvenna flokkur

13:00 Moto 1 125cc flokkur

13:20 Moto 2 85cc og kvenna flokkur

 

13:40 Moto 2 125cc flokkur

14.00 Moto 1 meistaraflokkur A riðill

14:30 Moto 3 125cc flokkur

 

14:50 Moto 1 meistaraflokkur B riðill

15:20 Moto 2 meistaraflokkur A riðill

15.50 Moto 2 meistaraflokkur B riðill

16.20 Moto 3 meistaraflokkur A riðill

 

17:00 Verðlaunaafhending

 

3. Skoðun hjóla.

Keppendum ber að mæta til skoðunar á tilsettum tíma.  Hjól sem keppa í 85cc flokki og kvennaflokki verða skoðuð fyrst, því næst 125cc flokkur og síðast meistaraflokkur.  Keppendum ber að hafa með sér hjálma sína í skoðun.

 

4. Tímataka.

Tímataka er með hefðbundnu sniði nema hvað keppendum í meistaraflokk verður skipt í tvo hópa.  Við höfum raðað í A – hóp nú í upphafi tímabils byggt á úrslitum síðasta árs og áætlun okkar um árangur.  Hér ræður öryggissjónarmið þar sem við viljum ekki að hægari ökumenn verði í vegi fyrir þeim hraðari og valdi slysahættu.  Engu að síður eru það bestu tímar í bæði A og B sem verða lagðir til grundvallar fyrir rásröð þannig að keppendur í B riðli í upphitun sem eru með betri tíma en A riðilsmenn í upphitun fella þá niður um riðil.  Bestu 24 tímarnir í brautinni bæði í A og B  gilda því inn í A – riðil.  Óski ökumenn sérstaklega eftir því að fá að vera færðir úr A riðli niður í B riðil er það mögulegt en við minnum á að einungis fyrstu 20 sæti í A riðli gefa stig til Íslandsmeistara.  Athugið einnig að ekki er nauðsynlegt að aka í brautinni allan tíman sem tímatökur fara fram.

 

Eftirfarandi er niðurröðun okkar í riðla í upphitun:

 

 

A – Riðill.

3

Reynir Jónsson

4

Einar Sverrir Sigurðsson

10

Haukur Þorsteinsson

14

Gunnar Sölvason

17

Jóhann Ögri Elvarsson

23

Michael Benjamín David

27

Magnús Ásmundsson

33

Árni Stefánsson

35

Pétur Ingiberg Smárason

46

Kári Jónsson

68

Ragnar Ingi Stefánsson

80

Bjarni Bærings

111

Gunnlaugur Karlsson

119

Friðrik Arilíusson

139

Hjálmar Jónsson

250

Jón Ágúst Garðarsson

270

Valdimar Þórðarson

757

Gunnlaugur R. Björnsson

771

Ed Bradley

990

Brent Brush

299

Ágúst Már Viggósson

799

Ragnar Kristmundsson

 

 

B – Riðill.

30

Þorvaldur Örn Ásgeirsson

38

Einar Bragason

39

Steinn Hlíðar Jónsson

56

Gunnar Örn Svavarsson

69

Róbert Jónsson

73

Guðmundur Jóhannsson

74

Árni Gunnar Haraldsson

79

Hinrik Þór Jónsson

96

Þóroddur Þóroddsson

101

Daníel Karlsson

115

Benedikt Helgason

120

Kristinn G. Guðmundsson

201

Erling Valur Friðriksson

221

Guðbjörn Þór Sigurðsson

234

Kristdór Þór Gunnarsson

269

Jóhann G. Arnarson

306

Þórir Guðmundsson

404

Örn Sævar Hilmarsson

456

Gunnlaugur Jónsson

511

Halldór Kristinn Björnsson

707

Sigurður H. Magnússon

721

Ellert Ágúst Pálsson

 

5. Start, tími mótóa, tímataka, birting úrslita og kærufrestur.

Keppendum ber að mæta á ráslínu samkvæmt dagskrá.  Ræst verður á hefðbundinn hátt og mun verða notast við teygju.

 

85 cc og kvennaflokkur ekur í 2 x 10 mín + 2 hringir.

125cc flokkur ekur í 3 x 10 mín + 2 hringir.

Meistaraflokkur A ekur í 3 x 15 mín + 2 hringir.

Meistaraflokkur B ekur í 2 x 15 mín + 2 hringir.

 

Keppendum ber að verða sér úti um tímatökusenda og hafa þá fullhlaðna á hjóli við skoðun.  Þar verða þeir prófaðir með þar til gerðu tæki.  Úrslit úr tímatökum og hverri umferð verða hengd upp á bíl tímavarðar jafnóðum og þau eru tilbúin.

 

Kærufrestur er samkvæmt keppnisreglum.

 

6. Skyldur keppenda,

Keppendum er skylt að mæta í skoðun á réttum tíma og fara eftir fyrirmælum keppnisstjórnar.  Aðstoðarmenn eru á ábyrgð keppanda og ber þeim að ganga um keppnissvæðið vel og skilja ekki eftir rusl. Keppnislið / aðstoðarmenn sem sýna ekki keppnisstjórn og starfsmönnum keppninnar háttvísi eiga á hættu refsingu sem keppandi tekur út.  Gáleysislegur akstur og eða hraðakstur á viðgerðasvæði getur einnig varðað refsingu.  Keppandi sem unnið hefur til verðlauna og mætir ekki á verðlaunaafhendingu missir sæti sitt og næsti keppandi færist upp.

Skildu eftir svar